Good-Templar - 01.08.1901, Síða 5

Good-Templar - 01.08.1901, Síða 5
93 táralind, þá skyldi eg gráta nætur og daga þá er fallið hafa af þjóð minni“ ? Getur mannlegt hjarta stunið upp innilegra andvarpi en þessu? Hér birtist oss það, sern er aðaleinkenni hinnar sönnu ætt- jarðarástar, órækt merki á hverjum sönnum föðurlandsvini; hann sér gallana, sem eru á þjóðlífinu, engu síður en það, sem betur fer, finnur til meinsemdanna á þjóðlík- amanum, og það svo sárt, að sár þjóðarinnar verða hans eigin sár. Hann sér þá um leið svo og svo mörg mannslíf í veði, sér hættuna stefna að svo og svo mörgum einstaklingum, — sér hörmungarnar steypast yfir ótal hús og heimili, finnur kvíðaim, sorgina og bágindin, er hvíla á mannshjörtunum. Honum óar við ölium þeim mannsæfum, sem fara til ónýtis, hryllir við spiltum aldarhætti og afvegaleiddu almenningsáliti. Og af því að hann eiskar mennina, elskar þjóð sína og land, þá ber hann fram þessa spurningu úr djúpi sálar sinnar, hróp- ar hana út til mannanna, sem í kring um hann eru og hann nær til: Hví er eigi bundið um sár þjóðar minnar ? Og hvort sem mönnum likar það betur eða ver, heldur hann áfram að endurtaka spurninguna og benda á sárin, í þeirri von, að menn- irnir einhvern tíma vilji sjá að sér, vilji láta sér segjast, vilji hlýða boðum Guðs, vilji sveigja líf sitt inn á sannleikans og kærleikans leiðir. Og því lengur sem hann vinnur í sannleik- ans þjónustu, því lengur sem hann starfar að þvi, að efla vel- ferð lands og þjóðar, þess sárar tekur hann til ailra þeirra bræðra sinna og systra, sem farast. og glata lifi sínu, og þess meir vorkennir hann öilum þeim, er við sárin eiga að búa. Því betur sem hann kynnist sorginni og bágindunum, þess innilegar þráir hann ljós og yl, eigi fyrir sjálfs síns sál, heldur fyrir þá meðbræður sína, sem þetta skortir. Tilheyrendur mínir, eg vildi óska að slík ættjarðai'ást yrði rikjandi í hjörtum íslendinga, yrði líkjnndi í vorum eigin hjörtum, svo að vér teldum sár þjóðaiinnar vor sár, og fynd- um eins til þeirra meinsemda, er að henni ganga, sem væru þau sár á vorum eigin iíkama. En biðjum þá líka Drottin að gefa oss annað eins hugrekki, annan eins dug og annað eins þor og hann gaf hinum mikla spámanni sínum, svo að vér jafnan með sömu alvöru og hann getum beint þeirri spurn-

x

Good-Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.