Good-Templar - 01.08.1901, Page 15

Good-Templar - 01.08.1901, Page 15
103 Mælt með Friðbirni Steinssyni bóksala á Akureyri sem Umd. Umboðsmanni. Þingið byrjaði kl. 11 árd. þ. 8. og endaði þann 10., kl. 2 árdegis. Seyðisfirði, 26. Júlí 1901. Á almennum bindindisfundi, sem haldinn var á Vestdals- eyri hór í firðinum, mættu fulltiúar frá 6 stúkum og 3 bind- indisfélögum, og gáfu þeir svo hljóðandi skýrslu: St. „Hekla" nr. 18 hefir 31 meðlim; hagur hennar yfir- leitt góður. St. „Gefn“ nr. 19: 36 meðlimir; hagur hennar góður yfirleitt. St. „Aldarhvöt" nr. 72: meði. hér um bil 60; stúkan er í bernsku, og á því fremur örðugt uppdráttar í fjárhagslegu tilliti. St. „Fjóla" nr. 63: 66 meðl.; hagur yfirleitt góður, en er fremur í hnignun. St. „Vetrarbrautin" nr. 23: rneðl. 49; fjárhagur fremur þröngur, þar eð stúkan hefir verið að koma sór upp fundarhusi; hagur að öðru leyti ágætur. St. „Nýja öldin" nr. 65: meðl. 30; st. á húseign, sem virt. er á 700 kr. St. á nokkra áhugamikla meði. og lét full- trúinn vel yfir framtíðarhorfum hennar. Bindindisfólagið „Sveitarblómið" í Hjaltastaðaþinghá: meðl. 50; á húseign, liagur yfirleitt góður. Bindindisfél. Eiðaskóla: meðl. 20; hagur yfirleitt góður. Bindindisféiag Borgfirðinga: meðl. 45; fjárhagur dágóður, framtíðarhorfur góðar. Á fundinum upplýstist, að Bindindisfélag Seyðfirðinga á vandað fundarhús og virðist standa á föstum fótum. — Fulltrúa vantaði frá st. „Elding“ og st. „Döggin“, og bindindisfólagi Reyðfirðinga. Yfirleitt virðist bindindismálið eiga góða frámtíð fyrir hönd- um hér á Austfjörðum ; eru hér margir áhugamiklir og duglogir bindindismenn. Iíér má einnig geta þess, að tilraun hefir ver- ið gerð hór um sióðir með áskoranir til vínsölumanna, um að hætta allri vínsölu, og hefir fengið vonum betri undirtektir. G. A.

x

Good-Templar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.