Muninn - 01.02.1955, Page 2
2
MUNINN
r 1
MUNINN - blað Menntaskólans á Akureyri !
RITNEFND: PRENTNEFND:
Lára Samúelsdóltir, VI M Asgeir Karlsson, VI S
Helgi Hallgrimsson, VI S Páll Þórhallsson, V M
Emil Hjartarson, V M Svavar Hauksson, Landspr.d.
Kjartan Gislason, IV M ÁBYRGÐARMAÐUR:
Agúst Sigurðsson, III Ii Gisli Jónsson
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
J
sér að stunda nám í, eða setið eitt ár í und-
irbúningsdeild og tekið inntökupróf að því
Ioknu. Allar frekari upplýsingar um inn-
tökuskilyrði má fá frá skrifstofum háskól-
anna eða hjá „Zentralstelle fiir auslan-
disches Bildungswesen", Wilhelmsplatz 1,
Göttingen. Umsókn um skólavist skal senda
til rektors viðkomandi háskóla eigi síðar en
tveim mánuðum áður en „Semester" hefst.
í umsókninni skal geta um þjóðerni um-
sækjanda og hvaða námsgrein hann ætli sér
'að leggja stund á. Auk þess skulu fylgja um-
sókninni eftirtalin skilríki:
1) Upplýsingar um hvers konar skólanám
umsækjandi hafi áður stundað.
2) Stúdentsprófsskírteini eða annað próf-
vottorð, sem veitir rétt til inngöngu í há-
skóla. Skírteinið á að vera á þýzku (sé það
ekki á ensku eða frönsku) og verður að
fylgja með staðfesting á, að þýðing sé rétt.
3) Ef umsækjandi hefur þegar stundað
nám í háskóla, skal greint frá því .og próf-
vottorð, ef til eru, látin fylgja.
4) Vottorð um kunnáttu í þýzku.
Umsókn um skólavist er svarað bréflega.
Innritun stúdenta fer fram í byrjun hvers
missiris, og er æskilegast, að þeir séu þá
mættir í háskólanum. Fá reglulegir nem-
endur þá háskólabréf sín og námsferilsbæk-
ur, sem í á að skrá fyrirlestra þá, er þeir
sækja. Ekki er stúdentum við þýzka háskóla
gert að skilyrði að sækja ákveðinn fjölda
fyrirlestra. Fer tímasókn eftir þörfum og
dugnaði hvers og eins. I heimspekideild,
lögum og hagfræði er algengt, að stúdentar
'hafi 20—24 kennslustundir á viku, en í öðr-
um greinum, t. d. verkfræði, náttúrufræði,
læknisfræði o. fl„ er meiri tímasókn nauð-
synleg. Um þetta er bezt að ráðgast við við-
komandi prófessor.
Skólagjöld og annar námskostnaður.
Erlendir stúdentar, sem stunda nám við
þýzka háskóla, greiða yfirleitt sömu skóla-
gjöld og þýzkir stúdentar. Eru gjöld þessi
tvenns konar: 1) Innritunargjald (um það
bil 30 vestur-þýzk mörk), sem greitt er einu
sinni fyrir allan þann tíma, sem stúdentinn
dvelur í háskólanum. 2) Missirisgjöld: í
heimspekideild, guðfræði, lögum og hag-
fræði eru það um 175 mörk, í náttúrufræði,
tannlækningum og dýralækningum 250—
300 mörk.
Húsnæði og fæði er dýrast í stórborgun-
um. Gott herbergi kostar þar a .m. k. 40—60
mörk á mánuði. í minni háskólabæjum þyk-
ir hæfilegt að greiða 30—40 mörk. Mjög
víða eru ágætir og ódýrir stúdentagarðar.
Má t. d. nefna Christian Albrecht Haus í
Kiel. Um það bil helmingur stúdentanna,