Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1922, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.01.1922, Blaðsíða 5
HÉÍMILISBLAÐIÐ 3 meiri, sem aldri munar meir, eða lífsreynslu- munurinn er meiri. Aldur og lífsreynsla fara jafnan saman, þannig, að því fleira og meira reynir, sem lengur lifir, og »fleira veit sá, sem fleira reynir«. Þó fer þetta mjög misjafnlega sam- an. Sumir reyna margt og mikið þegar á unga aldri, mikið meira og íleira en ýmsir eldri, og verða þá líka vanalega og eðlilega fullorðinslegri en ella mundi, einkum ef lundin er ekki létt, hjartað viðkvæmt og hyggjan nokkuð djúp. En sumir virðast fá litla og létta lífsreynslu, þó lengi liíi. En fár eða enginn gamall mun þó svo lítt reyndur eða Iærður í lífsins skóla, að hann í því efni beri ekki af ílestum hinum yngri. Eins og þegar er sagt, gjörir aldursmun- urinn og lífsreynslumunurinn mestan mun- inn á ungum og gömlum, en sá munur er ásigkomulags- og ástœðnamunur. Pað er lögmál þessa lífs, að með aldrinum hærri slitnar líkami manns, bognar og hrörnar og heilsa og kraftar bila, og eftir því meir sem meir eldist. Svo gerir líka lífsreynslan sitt til að lýja, lama og veikla, og því meira sem hún er sárari eða barðari. Eftir þessu fer svo bæði likamlegt og sálarlegt ásigkomulag, kringumstæður og kjör, þarfir og þrár hins aldraða manns. Hann verður meir eða minna ósjálfbarga, ástæðurnar þrengast, kjörin þyngjast, þarf- irnar aukast og fjölga, og þrárnar verða sárar, gleðiljósunum fækkar, raunaskugg- unum fjölgar, og svo getur farið, ef aldur endist til elli, eða ef heilsan hilar alveg, þó fyr sé, að maðurinn verði alveg ósjálf- bjarga, þurftarmargur og þurftarfrekur, og upp á aðra kominn eins og hvítvoðung- urinn. Alt er þetta gagnstætt, öðruvísi og betra hjá hinum unga og upprennanda, ef hann annars er heill og hraustur, eins og hann, sem betur fer, yfirleitt er. Með hverju bernsku- og ungdómsárinu vex og þrosk- ast hann, réttist upp, blómgast og styrkist og bernsku- og æskulifsreynslan hjá ílest- um er líka nú orðið, sem betur fer, svo ljúíleg og góð, að hún einnig uppbyggir og fegrar likamann og lífið. Fyrir því verður líka alt ásigkomulag hins heilbrigða unga manns, bæði til líkams og sálar, yfir höf- uð, sældar ástand, kringumstæður hans góðar; hann getur verið meir en sjálfum sér nógur, bætt sjálfur kjör sín og sinna, upptylt þarfirnar, gert sér ótal vonirnar glæsilegar, og vonað, að óskirnar rætist. Umhorfurnar hjá honum eru því bjartar, en þó einkum framhorfurnar. Á framtíðar himninum sínum sér hann mörg björt og blíð gleðiljós og marga vonai'- og óska- stjörnur, og þó að nokkur stjörnuhröp verði þar stundum, þá birtast aðrar jafn- harðan í staðinn, og gleðiljósum fækkar eigi, heldur fjölgar fyrir sjónum hans alt fi'am á manndómsaldur, og stundum leng- ur. Alt þetta gei’ir hann sterkan og státinn, og færan í flestan sjó lífsins, færan til að reynast, læra og prófast i lífsins skóla, ag- ast þar, lagast og mentast alt fram á gam- als aldur — alt þar til, að í honum sjálf- um mætast og sameinast ungur og gamall, og hann þá má skilja og elska bæði ungan og gamlan, og finna sjálfan sig fullkomn- ari og allri farsæld nær en áður. Þannig er nú og fer fjnir urigurn og gömlum, ef alt er heilbrigt og heiðarlegt, og eftir hlut- arins eðli, eða eftir sennilegasta tilgangi lífs- ins, sem er þessi: Að ungur og gamall fallist í faðma, verki til heilla hvor á ann- an, svo að ungur verði gamall og gamall ungur. Með þessu á eg við það, að þegar maður eldist, eða verður gamall, þá sam- lagast og samþýðist í honurn, í sálu hans, það, sem tilheyrði eða tilheyrir hans yngri og efri aldri, jafnar og bætir hvað annað, og með því fullkomnar og farsælir rnann- inn. — En eins og þetta á þannig að koma fram, og kemur líka fram við rnargan éinstakan mann, sem lifir það, að vera fyrst ungur og síðan gamall, eins á og þarf svipað eða hið sama að verða í sambandi og samlífi eins ungs manns við annan gamlan mann, og gamals manns við ungan mann. Þeir

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.