Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1922, Blaðsíða 15

Heimilisblaðið - 01.01.1922, Blaðsíða 15
HEIM ILISBLAÐIÐ 13 seinast niðri við guðsþjónustu, þá sló að yður«. »Hvernig farið þér að gjöra yður í hug- arlund, að eg geti farið á mis við guðs- þjónustuna, þær eru ekki svo oft haldnar hérna? Hér eru miklu oftar hafðir upp- lestrar og samsöngvar en guðsþjónusta«. »Já, það er vel að svo er, það ríður á að skemta sjúklingum og gera þeim eitthvað til gamans«. »Já, eg hefi mætur á sönglistinni og liefi ekkert á móti henni, en það vil eg segja yður í allri hreinskilni, að við, veslingarnir hérna, sem erum að berjast við dauðann dag eftir dag — við þurfum þess þó langt um fremur við, að heyra sagt frá þeim Drotni. sem hefir sigrað dauðann með þvi að deyja sjálfur og rísa upp aftur, til að veita öllum syndurum líf og ódauðleika«. »Já, það lætur vel í eyrum, en —«. »Hvað segið þér, læknir, lætur það vel í eyrum? Eg hélt það léli voðalega illa í eyrum yðar«. »Hví þá það?« »f>ví er eins varið með Guðs ríld, krist- indóminn, og sönglistina. Yér verðum að hafa hljóðglögt eyra og móttækilegt hjarta, til að veita því viðtöku; annars fellur það eins og annar fölskvi dautt til jarðar«. »þér hafið máské hljóðglögt söngeyra, ungfrú?« »Já, eg hefi yndi af söng«, svaraði Lára. »Eg líka«. »Þér hafið máske líka opið eyra fyrir kristindóminum ?« »ög jæja. En hvað er það, sem margir þessir prestar eru að bera á borð fyrir fólk? Sumt af því eru algengar mannlegar hug- leiðingar út af ýmsu efni, ýmsist dálítið bragð af pólitík, ýmist vitund aí þjóðrækni og föðurlandsást; stundum eru þeir voða harðorðir; en undir þessu öllu situr maður og hugsar með sér: þetta er tómt glamur hjá honum; stundum er hann svo kjassmáll, að maður fær velgju. Yitið þér, hvað eg var að hugsa um, þegar eg sat undir pré- dikuninni á sunnudaginn var?« »Nei«, svaraði Lára. »Já, þér megið ekki reiðast þvi, sem eg segi, en það var þessi hugsun, sem greip mig: Hvernig mundi Jesús nú eiginlega hafa litið út með mjúkan, kringlóttan hatt- kúf á höfði og ógngisinn skegghýung á vöngunum og gleraugu á nefinu, eins og presturinn okkar, með augun fjörlausu, hallandi dálítið undir flatt — eg man ekki til livorrar hliður hann hallaði höfðinu. »0g jæja! En þetta orð — liún tók fram biblíuna sína — prédikar hann eins og hann er, og þá ríður á að hafa hjarta sem veitir honum viðtöku«, mælti Lára, og um leið og hún rétti lækninum höndina og bauð góða. nótt, þá sagði hún: »En hjartað er ekki reglulega móttækilegt fyr en það er sundurkramið«. (Niðuriag næst). »Þokka býður þrifin önd« þjokk og fríð er snótin; lokkar þýðir lífga önd, lokka blíðu hótín. »Margur leilar langt yfir skamt« lukku ytri sinnar, verður því í geði gramt; — gæfan manns býr innar. »Mikið er gagn að góðum þjón«, gcfur hann hagnað búi. Þrifinn fagnar þeirri sjón þjónninn iagni og trúi. »Á aflið treysta allílestir« og eigin hreysti að reyna. Að sigla geyst í góðum byr getur freistað sveina. G. G., i Glu

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.