Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1922, Blaðsíða 6

Heimilisblaðið - 01.12.1922, Blaðsíða 6
Betiehein. frið, fylti sérhvert hjarta fögnuði, yrði hvers- dagsleg. Það hafði hann aldrei mált hugsa til. — Honum var í barnsminni, hvað hann hafði hlakkað til jólanna, og hvað jólafast- an hafði verið lengi að líða. Og þó að langt væri siðan, og hann ekki framar barn, mundi hann þó undur vel eftir hvað litlu, sem þá kom fyrir hann, og varð honum að gleði. Og nú átti hann börn, og eina jóla- gleðin hans sjálfs, síðan þau fæddust, hafði verið sú að gleðja þau á jólunum. Og það hafði honum altaf tekist, að einhveiju leyti, að gera þeim jólin gleðileg. Honum hlýnaði í huga, er hann hugsaði til spilanna, sem mamma þeirra ætlaði að gefa þeim og hann var innilega þakklátur Áslaugu, að hafa látið sér koma slíkt til hugar. Hann vissi þó hvað hún hafði ætlað sér að nota ullarhárið. Hún hafði ætlað að hafa það neðan við sokka handa sjálfri sér, og hafði vist ekki veitt af því. Hún var ekki svo plaggarik . . . En svo kom kvíðinn aftur . . . ef kaup- maðurinn segði nei . . . neitaði honum um alt . . . þá hvað . . . ? Hann þorði ekki að hugsa um það frek- ar og fór að herða gönguna. Það var á milli nóns og miðaftans að Jón í Heiðarseli náði í kaupstaðinn. Hann fór rakleitt niður að sölubúðinni og tróð sér inn. Það var blindös í búðinni. Allur fjöld- inn að taka út til jólanna, eða þá að gera skil á skuldum sínum. En svo voru þar og allmargir þorpsbúar, sem ekkert voru að starfa annað en að flækjast fyrir þeim, sem erindi höfðu í búðina. Jón beið um stund og þótti illa áhorf- asl með afgreiðsluna. Þó gat hann áður en langt um leið komið orðum við einn búð- arþjóninn og spurt, hvort hægt væri að ná tali af kaupmanninum. Þjónninn mældi Jón með augunum og svaraði síðan með þjósti: »Nei, . . . áreiðanlega ekki í kvöld«. »Eg hefði þó þurft að ljúka erindum

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.