Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1922, Qupperneq 12

Heimilisblaðið - 01.12.1922, Qupperneq 12
154 HEIMILISBLÁÐIÐ * baka pönnukökur og kleinur, svo og að brydda siðustu skóna. Svunturnar var hún ekki búin með, en þegar Jón hefði lokið útistörfum, átti hann að halda börnunum inni í baðstofu á meðan hún lyki við að sauma þær. Ekkert barnanna átti að vita um nýju fötin fyr en um kvöldið, að búið væri að kveikja. En Jóni dvaldist úti við . . . lengur en Áslaug hafði búist við, af því að hún vissi, að hann hafði ekki sýnt neinni skepnu út um daginn. Þó kom hann um síðir og settist þá þegar að með krökkunum, þó að þeim þættí lítið gaman af að einangrast inni. Þau höfðu unað vel frammi í eldhúsj hjá mömmu sinni við að horfa á það, sem hún var að gera. En þegar pabbi fórað segja þeim fallegu sögurnar, sem bundnar eru við jólin, urðu þau rólegri og gleymdu öðru hvoru pönnukökunum og kleinunum, sem mamma var að búa til. Það leið nær og nær jólahelginni og Ás- laug keptist við. Einu sinni brá hún sér inn í baðstofu. Þá var Jón að afldæða börnin og þvo þeim. Það var einmitt það, sem hún hafði ætlað að biðja Jón að gera^ svo alt væri til reiðu, þegar hún hefði lok- ið við saumaskapinn. Nú þurfti þess ekki. Jón hafði farið nærri hvað með þurfti. Hún flýtli sér fram aftur og fór að láta í pottinn . . . jóla-hangikjötið, svo tók hún aftur til saumanna, og eftir nokkura stund hafði hún lokið við svunturnar. Þegar hún kom inn aftur, hafði Jón kveikt á dálitlum vegglampa, sem aldrei hafði verið snertur frá því um vorið, að Jón kom með hann úr kaupstaðnum. Ljós- týran var látin duga hversdagslega, enda störðu hörnin á þetta nýja ljós. Það var ekki neinu líkt, sem þau höfðu áður séð. »Getur þetta ljós dáið?« spurði eldri stúlkan, en Bjarni var að hugsa um hvað hann myndi þurfa að blása mikið og oft, til þess að slökkva þetta nýja ljós. Áslaug kom með nýju fötin og fór að færa börnin í þau. Á meðan smeigði Jón sér úr hversdagsleppunum ogískárri garm- ana. Þegar hann hafði lokið því og þvegið sér, fór hann fram í bæ. Hann var dálitla stund frammi og hafði Áslaug lokið við að klæða börnin, þegar hann kom aftur. Jón hvíslaði einhverju að konu sinni og jánkaði hún því brosandi. Svo fór hann fram aftur. Á meðan þvoði Áslaug sér og greiddi, batt svartdröfnóttan skýluklút um höfuðið og setti upp hreina svuntu, en bætta . . . það var viðhafnarbúningurinn hennar, klúturinn og svuntan . . . annað átti hún ekki umfram hversdagsgarmana og jóla- köttinn hafði hún klætt síðustu þrjú árin. En það gerði ekkert til, úr því börnunum hennár var borgið . . . úr því þau þurftu ekki að ldæða jólaköttínn. Og ekki varð annað séð en að börnin væru ánægð með nýju spjarirnar. Systurn- ar skoðuðu rósirnar í nýju svuntunum og Bjarni skálmaði hróðugur um gólfið í nýju buxunum. Svo kom Jón inn. Hann kom með kert- in, kveikti á þeim og lét þau í stjaka, sem hann hafði líka með og setti á borðið. »Þetta hefirðu verið að smíða í dag, þeg- ar eg gat ekki skilið, hvað þú værir að dunda úti við«, sagði Áslaug og brosti ánægjulega. Og Jón kinkaði kolli til sam- þykkis. Nú varð bjart í litlu baðstofunni! Enda störðu börnin forviða á þessa miklu birtu og ljósadýrð. Svona mörg ljós höfðu þau aldrei séð í einu. Pabbi og mamma sögðu þeim að þau ættu að eiga kertaljós- in. Bjarni kaus sér undir eins hæsta Ijósið, en um hin var enginn ágreiningur. Og svo hlupu börnin upp um hálsinn á pabba og mömmu og kystu þau fyrir ljósinognýjufötin. Jón var að leita að hugvekjunum, en í sömu svifum heyrðist barið að dyrum. »Hver getur verið svona seint á ferð núna?« sagði Áslaug; henni hafði orðið dálítið hverft við. Jón gekk til dyra og skaut lokum frá hurðu. Þar stóðu tveir menn, sem Jón kannaðist við, er þeir höfðu sagt til sín. Þeir áttu heima hinumegin við heiðina. <

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.