Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1922, Qupperneq 14

Heimilisblaðið - 01.12.1922, Qupperneq 14
156 HEIMILISBL AÐIÐ komu samt«, bætti hann við brosandi og kysti Áslaugu á kinnina. »Svo sannarlega hefir Guð bænheyrt mig . . . og blessuð börnin okkar . . . nú verða jólin eins og eg var búinn að hugsa mér . . .« Áslaug sagði ekki fleira en tárin lædd- ust niður kinnarnar. Það voru fegins og þakkartár yfir þvi, hvað ræzt hafði úr fyrir þeim. Jón var lika viðkvæmur, en hann hafði ekki augun af Bjarna litla, sem altaf var að snúa fyrir sér spilapakkanum, og brjóta heilann um, hvað það annars myndi nú vera, sem hann hefði að geyma þessi und- arlegi pakki. — En gleði og undrun barnanna, þegar þau fóru að fletta spilunum, verður ekki lýst. »Nei, sko, þetta er maður, og þarna er annar . . . og stúlka . . . en hvað þetta er fallegt 1« hrópaði Bjarni og svo komu spurn- ingarnar og leystu foreldrarnir úr þeim og sýndu þeim hvernig þetta leikspil væri notað. Skömmu síðar fór Áslaug að hugsa um matinn. Bjarna fanst ekkert liggja á því . . . þau skyldu heldur spila . . . það var svo gaman. Jón varð eftir og spilaði við börnin og sagði þeim um heiti spilanna. Þó hafði hánn hugann ekki við það . . . og svaraði Bjarna litla út í hött. Hann var að hugsa um það, sem Áslaug hafði sagt i hrifningu og fögnuði . . . hún hafði sagt, að Guð hefði bænheyrt sig . . . og hann fann sannfæringarkraftinn í orð- unum . . . Hver vissi, nema að Guð greiddi fram úr þrautum hans . . . ef til vill ekki hans vegna . . . en vegna Áslaugar og barnanna þeirra? Hver vissi . . . ef hann bæði Guð . . . ef þau bæði sneru sér til Guðs í raun- um sínum og bæðu hann hjálpar . . .? Hver vissi nema að þau yrðu bænheyrð? Hann ætlaði frá þessum degi að biðja Guð og . . . treysta honum!« — 1910 — Einar E. Sœm. £f'ólin. Enginn hátíð hugnast mér, sem heilög jól, með barnafögnuð, frelsislofsöng, friðarsól. Gefi Drottinn góður þér að gleðjast nú, sem auðmjúkt barn í einni von og elsku og trú. Jólastjarnan, helga, hreina hauðrið geislum dreifir á; það, að Drottinn elskar alla, af þeim geislum ráða má. Jólaklukkur hvellum hljómi hringja’ inn jólafriðinn nú, öllum háum, öllum smáum, öllum þeim, sem hafa trú. B. J. 0 Einföld guðfræði. (Sbr. Sálm. 126, 3.). Taylor, vinur Spurgeons, segir svo frá: Skömmu áður en eg færi síðustu ferðina til Menton, þá gerði Spurgeon mér orð að finna sig og þá sagði hann við mig: »Bróðir! eg held að dauðinn sé fyrir dyrum. Það getur að sönnu verið vilji Guðs, að gera mig heilan aftur, en hvernig sem fer«, sagði hann og lygndi augunum, »þá verði Guðs vilji«. Yið sátum lengi hljóðir, en síðan sagði hann: »Hvað mundu öll guðfræðis- kerfin nýju stoða mig, þegar eg nú á að deyja«. Þá brá fyrir leiftri í augum hans og hann sagði: »Bróðir, guðfræðin min er orðin svo óvenjulega einföld og óbrotin, en hún nægir mér fyllilega. Hún nægir ef til vill ekki í prédikun, en hún nægir til að deyja upp á hana. Hún kemst öll fyrir í fjórum smáorðum og þau eru þetta: »Jesús dó fyrir mig!« Þetta nægir mér, bróðir!«

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.