Heimilisblaðið - 01.03.1918, Blaðsíða 15
HEIMILISBLAÐIÐ
47
Hvað getur verið ólíkara ?
Vinur minn! Vilt þú leggjast vonarlaus í
;gröf þína, af því að þú hefir ekki öðlast eilífa
lifið fy rir Guðs son Jesúm Krist, hefir ekki lif-
•að lífi þínu í samfélagi við hann?
Hafir þú Jesúm Krist, þá hefir þú lifið.
EldMsráð.
Kommgakaka.
Saman við 200 grömm af hrærðu smjöri
^skal hræra smátt og smátt 6 eggjablómum.
Því næst 250 grömm af hveiti og svo 150 gr.
af slrausykri og 50 gr. stórsteyttar möndlur.
Siðastgskal hræra eggjahvíturnar, sem eiga að
vera vel þeyttar, saman við og gera það mjög
varlega, svo lyftingin fari ekki úr. Deigið er
því næst látið i flatt mót eða skúffu og haft
^vo sem eins og fingur þykt; ofan á má strá
stórsteyttum sykri og möndlum. Bökuð við
;góðan og jafnan hita.
Sknggsjá.
Eldfjallið Mont Sangay á Equador, er helst
■sígjósandi. Fjallið er 5000 metra hátt og hefir
stöðugt má heita gosið síðan árið 1728. Drön-
U1'nai', sem stundum hafa verið taldar nær 300
a klukkustund, heyrast í 30—40 danskra mílna
fjarlægð.
Hestar rísa vanalega fyrst upp á framfæt-
Urnar, en nautgripir á afturfæturnar.
Það er mjög sjaldgæft að febrúarmánuður
e j> 5 sunnudago, svo var þó árin 1784, 1824,
og 1880 og næst telur febrúar 5 sunnu-
'^aga 1920.
Stærsti vatnafiskur, er menn þekkja, er af
aborrakyni og á heima i ánni Níl; hann verð-
ur alt að 3 metrar á lengd.
í Guatemala í Mið-Ameriku hefir fundist
fiskategund, sem hefir tvens konar augu. Annað
notar hún til að sjá með ofansjávar, en hitt
til að sjá með í sjónum.
Hitastig sólarinnar segja lærðir menn að sé
6700 gr.
Nú nefna menn milljarda, sem hverja aðra
algenga' upphæð, en fáir muna gera sér grein
fyrir hvílík sú upphæð er. Ef einhver ætti 1
milljard krónur, þá gæti hann lifað áhyggju-
lausu lífi í 50 ár, án þess að ávaxta peninga
sína og mætti þó eyöa 50,000 kr. daglega. Ef
hann vildi skifta miljardinum í krónupeninga,
þá færu til þess 40 ár með 12 tíma vinnu á
dag. Herfylking í 4 röðum, sem teldi 1 milljard
hermanna, mundi vera 60,000 mílna löng og
ná 12 sinnum kringum jörðina.
Elsti leikari, sem sögur fara af, var leikar-
inn Charles Macklin. Árið 1789 lék hann hið
erfiða hlutverk Skylock í „Köbmanden í Venedig“,
í Lundúnum; þá var hann fullra 100 ára.
Nú um langan tíma hefir verið mikill hörg-
ull á skóleðri, sérstaklega í hernaðarlöndunum.
Tilraunir hafa verið gerðar til þess að bæta úr
þessum vandræðum sem öðrum, en þær hafa
viljað mishepnast. Nú hefir svissnerkur verk-
fræðingur fundið upp nýja aðferð til að spara
leður, þannig, að hann rennir málmþynnu neð-
an á sólana..
Tilraun þessa hefir hann gert bæði á leður-
pappírs- og trésólum. Það er alluminium, sem
hann notar til þess og málmhúðin á sólanum
er um x/4 millim. á þykt. Sólar þessir er sagt
að endist vel, séu vatnsheldir og fari mjög vel
með gólf. Það er mjög sennilegt að bráðlega
verði þessi uppfundning almenn, sérstaklega þar
sem áhaldið, sem notað er til þess að setja
þessa málmhúð á kvað vera svo einfalt og ódýrt,
að hver skósmíðavinnustofa geti aflað sér þess
og notað það.