Heimilisblaðið - 01.03.1918, Blaðsíða 16
48
HEIMILISBLAÐIÐ
Kínverski múrinn, sem margir hafa heyrt
nefndan, er eitt af furðulegnstu og mestu mann-
virkjum jarðarinnar. Hann v-ar fullgerður 204
f. Krist. A 2400 metra lengd er hann 6 metra
þykkur og 4m. hár. Hann liggur yfir fjöll
og dali, ár og engi, fen og ílóa og er talandi
vottur um atorku og elju löngu horfinna kyn-
slóða. Nú er hann á stórum svæðum fallinn í
rústir.
Skyldnrækni.
Þar bar til einn morgun, er bóndi einn á
Englandi kom út lil að gæta veðurs, að hann
sá riddaraflokk mikinn riða að garði og fór sá
all ófriðlega og hugðist ríða yfir engjar og akra,
sem stóðu í blóma.
Bóndi sendi einn af sveinum sínum til þess
að læsa vandlega hliðinu og undir engum kring-
umstæðum mátti hann hleypa þeim inn.
Drengurinn fór, læsti hliðinu og hélt vörð,
Riddaraflokkinn bar þar nú að og skipuðj þeir
drengnum að opna hliðið og hleypa sér inn.
Eu þrátt fyrir það þó þeir ógnuðu honum með
orðum og jafnvel vopnum, þá vék hann ekki
og hreifði ekki hönd til að opna hliðið.
Þá reið fram tíginn maður og mælti: „Eg
er hertoginn af Wellington og og er óvanur
því að skipunum mínum sé ekki hlýtt. Eg
býð þér, ungi maður, opna þú hliðið og veittu
oss inngöngu“.
Drengurinn hneigði sig kurteislega og sagði:
„Eg er þess fullviss, að hinn tigni hertogi ósk-
ar þess ekki að eg óhlýðnist skipunum hús-
bónda míns“.
Hertoginn var mjög ánægður með |þetta
svar. Hann sneri sér til manna sinna og
mælti; „Með hermönnum, slíkum sem þessi
sveinn er, gæti maður sigrað allan heiminn11.
Svo gaf hann drengnum eina guienu (= 21
shilling eða liðlega 18 krónur), — og riddara-
flokkurinn reið á braut.
SKRÍTLA.
A: Eg hefi séð mann, sem líkist þér svo
mjög, að eg hugði, að það værir þú.
B: Nú, þú hefir þá líklega borgað honum
þessar 50 krónur, sem eg lánaði þér í fyrra
sumar.
Prentvilliir þessar eru í áramótahugleiðingu.
séra Ófeigs Vígfússoonar og eru lesendur vin-
samlega beðnir að taka þær til greina.
Ártalið í fyrirsögninni 1917 les; 1918; á bls.
18 1. d. 13. 1. a. o.: timabils, les: tímatals;:
sömu bls. 2. d., 18. 1. a. o.: þarfnaðist, Ies:
þarfnast; bls. 19, 1. d. 26. 1. a. o.: „sem eru“
falli burt; sömu bls. 2. d. 16. 1. a. n,: af þvf
er snertir, les; að því er snertir; sömu bls.,
sama d. 14. I. a. n,: þá er viss um, les: þá
er eg viss um; 20. bls. 1. d. a. o.: hvar og
hvílíkur, les: hver og hvílíkur; 21. bls. 1. d.
22. I. a. n.: göndu ársg., les: gamla ársg,
sömu bls. 2. d., 25. 1. a. n., les: yfirstandandi
af komandi, les : yfirst. og komandi; á bls. 17,
10. 1. a. n.: blessunar og heiðri krýnt, les:
blessun og heiðri krýnt; á sömu bls. 1. d.
a. n.: hinna hryggu, les: hinum hryggu.
Maðurinn á Fcllströmlinni sem skrifaði
mjer viðvíkjandi vissu efni, er hann bað mig
að svara, hefir ekki fengið svar upp það bréf.
Eg tapaði bréfinu einhvernveginn og þótti mjög
leitt að geta ekki svarað honum. Eg býst við-
að hann lesi þetta og þætti mér vænt um að fá
bréf frá honum aftur.
Hr. Kristófer Kristófersson á Blönduósi
tekur á móti borgun fyrir blaðið í Ilúnavatns-
sýslu.
Hr. Andrés Jónsson, kaupm. á Eyrarbakka
tekur á móti blaðgjöldum úr Arness- og Rang-
árvallasýslum.
Borgið blaðið skilvíslega!
Útgefandi og ábyrgðarmaður: Jón Helgason prentarii
Félfcgsprenlsmiðjan, Laugaveg 4.