Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1936, Side 13

Heimilisblaðið - 01.09.1936, Side 13
HEIMILISBLAÐIÐ 139 Bæn. Ég bið, gódi Gud, oss leiddu gegnum lífsins böl og stríd; öllum kvída og angist eyddu, allan vernda kristinn lýd; á oss alla blessun breiddu, bú pú hjá oss alla tíð. Pegar enda cefistundir, okkur vertu, Jesú, hjá; láttu pínar opnu undir okkar trúar augu sjá, fyrir pær oss englafundir, eru vísir Guði hjá. G. P. skotið í áttina til lúgujnnar. Þeir skutu á greinina, sem sveiflaðist fram og aftur vegna átaka stormsins, eins og hún væri að reyna að hjálpa honum og gera umsát- ursmönnum ókleift að miða á hann. Hann vóg sig lítið eitt upp og gægðist niður. Fyrir framan hiöðudyrnar stóð Skugginn með krosslagða handleggi. Hann herfði á tréð og beið þess, að líkið af fórn- ardýri hans félli til jarðar. Með mestu herkjum gat Tom Converse stjórnað reiði sinni svo mikið, að hann reíf ekki upp skammbyssu sína og tæmdi inni- h-ald hennar í höfuðið á manninum, sem stóð þarna fyrir neðan. En hvert andartak var dýrmætt. Hann leit við og horfði inn í hlöðuna. Ekkert loft var í hlöðunni, og frá staðnum, þar sem Tom Converse var, sá hann beint niður í uppljómað gímaldið. Hjóskerin, sem héngu á þverböndunun>, vörpuðu ljósi sínu niður á við, en rúmið fyrir ofan og upp undir þakið var dimt. Hægt og varlega vóg Tom sig svo mikid UPP, að hann gat fengið fótfestu á einu af þverböndunum. Því næst tók hann að klifra áfram milli hinna mörgu sperra og bjálka, sen> lágu alla vega um þakið. Hundyuð manna hrópuðu og skutu fyrir utan, og þessi hávaði gaf honum þá örygg- istilfinningu, þar sem hann hélt sig núna. Fljótt og liðugt og svo Eljóðalaust, að ekki hið minsta skrjáf gat truflað mann- inn, sem sneri baki að hlöðudyrunum, klifraðí Tom sperru af sperru, þangað til hann var beint fyrir ofan Captain, í á aö gizka fimm feta fjarlægð frá baki hestsins góða. Þar nam hann staðar og lá endilang- ur á bjálkanum, en í sömu svifum lyfti Captain höfðinu og annar hestur innar í hlöðunni frýsaði. Skugginn sneri sér við í skyndi í hlöðu- dyrunum. Tom hélt niðri í sér andanum af hræðslu. Mundi . hinn blaktandi bjarmi í hlöðunni bjarga honum? Það leit einna helzt út fyr- ir það. Skugginn stóð kyr í dyrunum og rýndi í myrkrið uppi undir þakinu og bjóst auðsjáanlega við að koma auga á mann, sem stæði uppréttur og væri á hreyfingu, en ekki á mann, sem lægi á bjálka í þeirri sfefnu, sem hann horfði í. Hann hafði ekki komið auga á Tom Con- verse. Skammbyssunni, sem hann hélt á í hendinni, lyfti hann hvorki né hleypti af henni. Hann gat ekki séð' Tom, en það leit út fyrir, að hann gizkaði alt í einu á, hvar hann væri. »Halló!« kallaði hann. »Komið hingað! Það getur verið, að hann hafi stokkið af greininni og sloppið inn um hlöðudyrnar«. Tíu menn komu þjótandi inn um dyrn- ar. Skugginn sneri sér við til að vísa þeim leið. En um leið og hann sneri bakinu að Tom rendi hann sér niður úr fylgsni sínu. Brot úr sekúndu hékk hann á hondunum í bjálkanum og lét sig síðan falla í hnakk- inn á baki dökka hestsins. Þeir sáu hann í sömu svifum og hann datt, en áður en hróp gæti aðvarað Skugg- ann um, hvað gerst hafði að baki hon-um, hafði Tom Converse keyrt hestinn sporum. Skugginn sneri sér við í einni svipan - - en aðeins til að ,sjá Captain bregða fyrir um leið og hann þau,t út um dyrnar á hús- inu með flóttamanninn liggjandi álútan á hálsi sér. Frh.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.