Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1943, Side 10

Heimilisblaðið - 01.06.1943, Side 10
102 F'RÚ ANNA fægSi nafnspjaldið á hurðinni hjá sér þangað til að það var orðið spegil- fagurt og settist síðan í hægindastólinn og fór að gera við nærfatnaðinu úr þvottinum. Hann liafði nú orðið þörf fyrir endurnýj- un! Húu andvarpaði á meðan nálin gekk ótt og títt í gegnum slitin fötin, en notalegt var það að tilla sér svolítið og hvíla lúið bakið. Hún átti bágt með að leyna því, livað hún tók nærri sér að færa honum Knúti kaffið í morgun, en hann var allt af svo áhyggju- fullur hennar vegna, hlessaður drengurinn, að liann mátti ekki með nokkru móti kom- ast að því, að hún þvoði þvotlinn sinn sjálf, upp á síðkastið, af því að hún hafði ekki efni á því að borga þvottakonu. Það var ekki vegna þess, að honum mundi þykja minnkun að því, þó að móðir lians þvæði þvott, — sem betur fór hafði lienni tekist að ala hann upp sem siðaðan mann, — heldur var það af því, að hann var svo hræddur um að hún ofgerði sér með því. Nú var ekki nema liálft ár þangað til að liann var búinn að ljúka læknaprófinu, en það yrði krappur tírni! Þau liöfðu allt af gert ráð fyrir, að litlu reiturnar þeirra myndu hrökkva til þess tíma, er Knútur væri fær um að sjá fyrir sér sjálfur, og liún þorði ekki að segja honum að nú væru þær alveg þrotnar. Það var heldur ekki nema hálft ár eftir! Eftir það gæti hún lifað áhyggju- lausu lífi á litlu erfða-eftirlaununuin sín- um, og þar að auki leigt einhverjum snyrti- legunt stúdent herbergið, sem Knútur hefði núna, því að hún myndi eiga bágt með að sætta sig við að hafa engan til að annast um, enda hafði hún ekkert að gera við svona stóra íbúð ein, tvær stofur og eitt herhergi. Þegar frú Anna þurfti að hressa upp á skap sitt, hafði hún það fyrir vana, að forð- ast að hugsa um það, sem miður var. Hún vildi ekki lnigsa um eldiviðinn til vetrarins og annað, sem hún þarfnaðist, heldur um allt það, sem hún hafði ástæðu til að vera þakklát fyrir, og það var margt og mikið! Hafði hún kannske eina einustu sára minn- ingu um drenginn sinn? Var hann ekki ið- heimilisblaðið Smásaga eftir INGER BENTZON inn, ástundunarsamur og skemmtilegur — og vinsæll meðal félaga sinna? Og sögðu þeir ekki ávallt: „En hvað allt er snoturt og nota- legt liérna!“ þegar liann kom með þá heim á kvöldin, og það þó þeir fengju ekki ann- að cu tebolla og kex með heimatilbúnu ávaxtamauki, að mestu leyti úr gulrótum? Og margt smávegis höfðu þau sér til sanf eiginlegrar gleði. Hann hafði erft skilning föður síns á þýðingu smámunanna. Eins og það t. d. þegar hann nú um sumarkvöldin tók sér dálítinn sprett á gamla hjólinu sínu, „til að skerpa skilninginn“, eins og Iiann orð- aði það, eftir langan lestrardag, þá kom hann ávallt með vænan blómvönd með sér heim> sem hann liafði tínt meðfram veginum. Þau stóðu nú þarna á borðinu, svo að manni fannst eins og maður liefði verið uppi í sveit. Frú Anna strauk svolítið yfir línskyrtuna, sem hún var húin að festa hnappa á. Henni hafði nú heppnast línstrokan reglulega vel í þetta sinn, þó að hún segði sjálf frá, og það var ekkert 'smáræði, sem liann sparaði við það! Já, en hvaða hjálp væri að sparnaði, þeg' ar ekkert væri til að spara? Nei, um það vildi hún ekki liugsa núna! Kmitur hafði bæði keypt og borgað sjálfur skyrturnar sínar og snotru, gráu jakkafötin, sem liann var í, því að hann liafði notað snm* arfríið sitt, síðan að liann lauk fyrri hluta prófs síns, til að vinua í héraðs-sjúkrahúsinu, og Jiar hafði honum vegnað ágætlega. Það þrcytti hann ekkert, sagði hann, lieldur þvert á móti, Jiví að fæðið var afbragð og yfir' læknirinn frábær. Á meðan „var hún í sveit“, það er að segja í Friðrikshorgargarðinum. Hún liafði svo ht- ið við að vera heima, þegar lnin var ein og matartilbúningurinn var fábreyttur, því að lnin gat næstum því komist af með mjólk- urhlaup og ofurlítið af steiktum kartöflum- I garðinum var bekkur, sem henni þótti sv0 undur gott að sitja á og útsýnið var fagnrt og þaðan gat maður heyrt glaðan hlátur barn- anna. Margar elskulegar mæður komu þang" að líka með börn sín í vögnum, og þegar

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.