Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1943, Blaðsíða 16

Heimilisblaðið - 01.06.1943, Blaðsíða 16
108 HEiMILISBLAÐlÐ setið, einkum Jtegar takmarkið er a3 sjá og skoða þau umhverfi sem setja ógleymanlegar rúnir á minninganna spjöld. Stundum má segja að ýmsar kynnisferð- ir sem fólk tekur sér fyrir hendur, út um landið séu að ýmsu leyti óþarfar og mis- ráðnar, og að afloknum slíkum ferðalögum sé ekkert sem hefir safnast í sjóð endur- minninganna og á sér þar djúpar og óglevm- anlegar rætur. Þá er betur heima setið. -— Ég álít að það sé toluverðum vanda bundið að fólkið kunni að velja á milli andlegrar og líkamlegrar vellíðunar, eða öðlast hvorttveggja jöfnum höndum. — Slíka andlega og líkamlega vel- liðan er liægt að öðlast fyrir áhrifin af ó- venjulega fagurri og fjölbreyttri náttúrusýn. En slík vellíðan rná ekki blandast af „spiþri ánœgju' sem felst í sælgætisáti vín og tó- haksnautn, og óþarfa dekri við sinn eigin kropp. Því miður munu dæmi þess að sumt fólk notar frelsið og fríið til þess að „hrcssa' óþarflega mikið upp á sínar eigin óþörfu og dutlungasömu líkamsnautnir, J)að er mjög hætt við því að slíkt fólk verði sljóft og á- hugalítið fyrir hinu fjölmarga fagra og góða sem ríki náttúrunnar, landið sjálft^ liefir upp á að bjóða. Það er mikill gæfumunur, að yrkja landið, eða að yrkja ósómann í land- inu. Það er mikill munur á J)ví að vera nægju- samur, eða nirfill. Það er ennfremur langt hil milli J)ess að stunda reglusemi og hátt- prýði eða óreglu og ókurteisi. Ungu Islendingar til ykkar sný ég aðallega máli mínu. Verið ætíð athugulir og næmir fyrir hinu fagra og góða, livort sem J)að er í ríki náttúrunnar cða J)róast í sálarlífi ein- staklingsin8, samferðamannsins. Kappkostið að verða þjóð ykkar ómetanlegir borgarar. Verið reglusamir, hjálpfúsir, óeigingjamir, kærleiksfúsir, drengskaparmenn, þá nmn J)jóðfélagið byggjast upp af stæltum heil- brigðum, og trústerkum slofni. Byggið öll ykkar framtíðarmál á sterkuin grúnni. Haf- ið bjargið til undirstöðu en ekki sandinn. Þá munu verk ykkar standa vel og lengi, og verða minst um ókomin ár. Hvort kýst Jní heldur? Það er mjög mikið rætt um það á ýmsurr) vetvangi, live fólkinu fækkar nú á seinni tím- um, mjög í sveitunum. Þá er einnig mikið um J)að talað hverskonar ráðstafanir gera Jiurfi til að stemma stigu fyrir slíku útfalh sveitafólks til kaupstaðanna. Það eru sjálfsagt flestir sammála um J>au atriði sem valda slíkri fólksfækkun, og stefna atvinnulífi landbúnaðarins í voða. Hið mjög liáa kaupgjald sem kaupstaðirnir bjóða, og J)au framleiðslu- og fyrirtæki sem þar stunda sinn atvinnurekstur með sinni vélrænu tæknii hafa alla yfirburði lil Jiess að yfirbjóða vinnu- kraftinn frá sveitaframleiðslunni. Þetta er mjög alvarlegt ástand og þarf skjótra aðgerða við. Unga fólkinu langar til Jiess yfirleitt, að búa við þægindi og skemmt- anir. Það virðist vera orðin altof almenn stað- reynd, að slíkt á ekki að fyrirfinnast til sveit- anna svo að viðunandi þyki. Þá er stytting vinnutímans ekki svo lítið atriði, fyrir kaup- mátt og þol atvinnuveganna. Hinn íslcnski landbúnaður þolir ekki svo mikla stytting vinnutímans sem orðin er. Yfir 6umarmán- uðina hábjargræðistíma bændanna og annara sveitaframleiðenda, er ekki hægt að gera kröfu til Jiess að vinnutíminn sé styttur ofan fyrir 10 klst. vinnu á dag, Meðan vélamenn- ing landbúnaðarins er ekki á liærra stigi en orðið er, er }>að sanngjörn krafa lil allra vinnandi manna og kvenna scm hafa fulla lieilbrigði og })rek til að vinna, að liggja ekki á liði sínu þegar móðir jörð kallar börnin sín til starfa, það eru og verða óhrakin sann- indi að: — eins og hver og einn sáir, mun liann uppskera. Því er ekki að neita að kaupstaðimir liafa fyrir margra hluta sakir l)etri kaup og kjör að' bjóða, — að ógleymdum ýmsum þægind- um, — liehlur en svcitirnar. En J)etta þarf cinmitt lagfæring'ar við. Þennan misrnun þarf að lláta hverfa með öllu, á komandi tímum. Það J>arf að samræma betur á milb atvinnuveganna, kaupgjald og vinnutíma, svo að niður falli öll óánæga um það atriði. Enginn atvinnuvegur eða atvinnufyrir- tæki eiga að liafa aðstöðu til þess að bola hvert öðm frá, eða yfirbjóða vinnuaflið bvert frá öðru. Slíkt þýðir ekkert annað en

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.