Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1943, Blaðsíða 18

Heimilisblaðið - 01.06.1943, Blaðsíða 18
110 HEIMILISBLAÐIÐ INGIBJOR „Hvers vegna eruð þér að kvelja mig með því, að minnast a móður mína? — Fyrirgefið mér, ungfrú,' ég veit að þér gerið þetta í góðu skyni, en ég verð að fá að fara mínu fram. — Eg lield að ég ætti nú að fara eftir lyfinu, það er að segja, ef að þér treystið yður til að vera ein lijá sjúklingunum á meðan?“ „Ég treysti mér vel lil þess, þér skul- uð bax-a fara“. Hann fór í yfirliöfn sína og selti upp loðhúfuna, að því búnu gekk Iiaun inu í svefnbei'bergið. „Nú fer ég að sækja lyfið, Stína, og ef það' væri eitthvað, sem þig langar til að fá, þá segðu mér til þess“. Hún anzaði honum engu, liristi aðeins höfuðið frávísandi. En hve liann var þungbúinn og von- leysislegur á svipinn, er hann gekk fyrir gluggann og lagði út á eyðilegan og snjó- þungan þjóðveginn. Ingibjörg liorfði á eftir honum. Hvað átti liún að taka til bragðs? Ilvað gat hún gert fyrir þessi hjón? Hún opnaði Biblíuna. Nxi hafð'i hún þörf fyrir liughreystandi orð. Hún las: „Fel Drottni vegu þína og lieystu hon- um, liann mun vel fyxir sjá“. Böi-nin lágu nú í móki og frúin lá hreyfingarlaus, en Annína var vakandi og fagnaði komu lngibjargar inn til sín. „Ég væi’i vafalaust dáin núna, ef að þér hefðuð ekki komið þenna dag. Þetta var hörmungatími, einkum upp á síðkast- ið. Ég hugsaði með sjálfri mér, — það hefir þó víst veiið syndsamlegt af mér, — að Guð gæti ómögulega verið góður, ef hann hjálpaði okkur ekki. Húsmóðix- in og börnin svona fárveik, en þó var Smásaga eftir Corneliu Levetzotv ég verst sett, sexn álti að gera allt, og fékk skammir og jafnvel tilræði, og það þ° ég væri með svima og fæturnir þungii' eins og blý. En Guð er góður, og han» sendi yður, og nú líður mér mikið bel- ur. En þó verð ég víst að liggja á morg- un, ælli það ekki?“ „Pabbi sagði að þú yrðir að liggja 1 þrjá daga enn“. „Heila þrjá daga! Það er inndælt, þvi að þegar ég er einu sinni komin á fæt- ur, verður enginn friður“.------- Þegar garðyrkjumaðurinn kom aftur, fékk liaiin Ingibjörgu lyfin og eina vín- flösku. „Þelta er bezla vínið til þessara liluta, sein fáanlegt er. Eg spurði ekki um verð- ið. Ælli að það sé ekki bezt, að gefa henni það undir eins?“ Það var ekki gott að vita hvort frúin lieyrði það, sem liann sagði, því að hún bærði ekkert á sér. En hún tók allt in» möglunarlaust, sem Ingibjörg bar hen»» „Nú á ég að vaka í nótt, ungfrú“. Konán tók þétt í hönd Ingibjargar og sagði í liljóði: „Nei, nei!“ „Pabbi hélt að það þyrfti ekki að vaka núna, þegar börnin eru orðin rólegri og líður betur. Þurfi konan yðar á aðstoð minni að halda, þá getur hún liringt4'- Þó að Ingibjörg segði það ekki, mátti sjá það á ákveðnum svip hennar, að þetta þýddi: Við höfum þetta svona. Það var kyrrlátt veður um nóttina og himininn heiður og stjörnubjartur, og Ingibjörg þreyttist ekki á að horfa á hii»- inhvelfinguna. „Þér eruð þá á fótum enn, sé ég er* ungfrú“, sagði konan allt í einu. „Hvað er orðið framorðið?“

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.