Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1962, Side 16

Heimilisblaðið - 01.05.1962, Side 16
kvæmdum við þessa fjarstæðu hugmynd á stundinni. Að áliðnu kvöldi kom unga frúin heim. Hún var klædd léttum Crépe-kjól og í eink- ar góðu skapi. „Sæl, elskan mín,“ sagði maður hennar. „Og velkomin heim I Það er smávegis ... undrunarefni, sem bíður þín inni í svefn- herbergi." í saklausri gleði sinni hrópaði hún upp og flýtti sér þangað inn, því hún bjóst víst við, að maðurinn sinn hefði keypt ein- hverja gjöf handa sér. Andartaki síðar heyrðum við, sem biðum spenntir úti á svöl- unum, skerandi vein, síðan annað og loks hið þriðja; eftir það tóku við stunur, sem brátt hljóðnuðu, og ekkert heyrðist meir. Fáeinar mínútur liðu, en ekki kom kon- an fram, og maður hennar tók að verða órólegur. Hann reis á fætur til að ganga inn fyrir, en maður sá sem fengið hafði hugmyndina taldi það úr og sagði: „Hún hefur bara móðgazt svona. Látum hana vera svolítið lengur inni hjá dauðu slöng- unni, — hún læknast þá bara þeim mun betur af slönguhræðslunni í framtíðinni. Taktu bara eftir, að hún kemur aftur fram.“ En eftir því sem mínúturnar liðu, án þess hún kæmi, urðum við órólegri. „Við ættum annars að fara inn fyrir og vita hvað henni líður,“ sagði einn okkar, sem verið hafði mótfallinn hrekknum. „Magda er dálítið veikluð, og verið getur að liðið hafi yfir hana. Ég sagði að þetta væri heimskulegt grín.“ Þegar við opnuðum dyrnar, héldum við fyrst, að liðið hefði yfir konuna, því hún lá í hnipri framan við hjónarúmið. En við fljótlega rannsókn mátti sjá, að hún var látin. Og þegar við lyftum henni upp af gólfinu, komumst við að raun um dánar- orsökina, því að slanga, sem falizt hafði undir kjólfaldinum þar sem hún lá, hraðaði sér inn undir rúmið. Og það var einmitt maki slöngu þeirrar, sem drepin hafði ver- ið. Eiturslöngur af þessu tagi fara jafnan tvær og tvær saman, og þessi hafði verið í leit að hinum látna maka sínum. En hlutu þá eiginmaðurinn og hinn lé- legri ráðgjafi sín maklegu málagjöld? má spyrja. Já, svo sannarlega! Hinn síðar- nefndi reyndi að gleyma þessari endur- minningu með því að kasta sér út í vín- drykkju. Hann einangraðist og dó úr del- iríum tremens. Hvað eiginmanninn snert- ir, þá lifir hann enn, — en hann er sjúkl- ingur á geðveikrahæli. Ég sjálfur hlaut slíkt áfall við að sjá hina látnu, ungu konu og örvæntingar- fullan eiginmann hennar, að ég get aldrei orðið samur maður síðan. Ég hét því, að ég skyldi aldrei framar taka þátt í því að hrekkja aðra eða hvetja til fyrirhyggju- lausra og glannalegra tilrauna með annað fólk — hversu sakleysislega sem slíkir leik- ir kunna að líta út fyrirfram. E. J. MjTidin er tekin við forsetaskiptin á Ítalíu, sem fóru fram í Quirinalhöllinni í Róm. Til hægri er hinn ný- kjörni forseti, Antonio Segni, að ræða við fráfarandi forseta, Giovanni Gronchi. Heimilishlaðið kemur út annan hvern mánuð, tvö tölublöð saman, 44 bls. Verð árgangsins er kr. 50.00. f lausa- sölu kostar hvert blað kr. 10.00. Gjalddagi er O- apríl. — Utanáskrift: Heimilisblaðið, Bergstaðastræti 27. Sími 36398. Pósthólf 304. — Prentsm. Oddi h-f- 104 HEIMILISBLAÐIP

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.