Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 36

Heimilisblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 36
inn sem lagði til — með duldu brosi á vör — að þau skyldu ríða heim á bæ gamla smalans og sjá, hvernig Kappa liði. Prest- urinn hafði nefnilega heyrt, eins og fleiri, að áhugamál Flóru litlu væri að stunda sjúka. Kappi var stór og fallegur hundur, en hann þjáðist mikið og var langt leiddur. Þegar hún strauk honum um loðinn háls- inn, gerði hann tilraun til að sleikja hönd hennar, því hann fann að hún var góð og samúðarrík stúlka. Er hún hafði gælt við hann um stund, vildi presturinn fá hana til að halda áfram förinni, en Flóra litla var hugfangnari af því sem hún hafði tek- ið sér fyrir hendur en svo, að hún vildi halda áfram strax. Nú hafði hún, loksins, fengið lifandi sjúkling til að stunda; sjúkl- ing, sem ekki var líflaus brúða. Hún bað prestinn mjög kurteislega og elskulega að ríða heim einn og segja að hún kæmí svo fljótt sem hún gæti. Og þar eð presturinn hafði engan tíma til að bíða eftir henni, hét hann því að verða við ósk hennar, kvaddi og fór. Roskin kona smalans, sem var mjög hrif- in af jafn virðulegum gestum, varð nú að hita vatn á katli, og þrátt fyrir þjáninguna kunni Kappi vel að meta meðhöndlun Flóru litlu. Hún þvoði brotna fótinn eins vel og hún gat og batt síðan um hann eins fast og hún hafði krafta til, svo að brotið haggað- ist ekki. Hendur hennar fóru svo varfærn- islega um hinn veika lim dýrsins, að það hefði mátt ætla að hún væri þaulvön að binda um sár. Samt hafði hún aldrei haft neitt annað til að æfa sig á en brúðurnar, sínar eigin og systur sinnar, Parthe. Svo heilluð var hún af verkefni sínu, að henni fannst næstum ógerningur að slíta sig frá því. En þegar piltur var sendur ríð- andi heiman frá Lea Hurst, hlaut hún að kveðja Kappa vin sinn. Flóra var í sjöunda himni, er hún kom heim og sagði frá því, sem fyrir hafði kom- ið, og fullorðna fólkið gat ekki stillt sig um að hlæja að öllum þessum barnaelga áhuga á fullorðinna verki. Að áliðnu kvöldi kom gamli smalinn heim til sín. Hann gekk hægt, þungum skrefum, dapur í bragði, — því að nú vissi hann, að í kvöld varð hann að binda endi á þjáningar Kappa gamla; honum fannst óréttlátt að láta blessaða skepnuna kveljast aðra nótt í viðbót. — En það var konan hans, sem kom á móti honum, brosandi. ,,Ég held bara, að hundinum sé að batna. Litla stúlkan kom og batt svo vel um fót hans. Bíðum með það þessa nóttina að sálga honum,“ sagði hún. Og þegar maður hennar beygði sig niður og klóraði seppa bak við eyrað, sá hann einnig, að Kappa leið miklu skár en áður. Næsta dag, fyrir hádegi, kom Flóra í sjúkravitjun, og fögnuður hennar varð meiri en orð fá lýst, er dýrið tók á móti henni með því að dilla rófunni glaðlega. Aldrei hefur nokkur hundur heldur verið stundaður af annarri eins umhyggju og Kappi, og hann launaði henni allt erfiðið með því að verða albata og fylgja hús- bónda sínum í smalaferðir um margra ára skeiði eftir þetta. Foreldrar Flóru fylgdust með líðan hundsins, því að dóttirin sagði þeim allt um það á degi hverjum, og þau vissu um allan þann áhuga sem hún lét í ljós við að hjúkra og græða sár. Hins vegar höfðu þau engan grun um það, að þessi litla dóttir þeirra ætti eftir að verða heimsfræg fyrir að valda sannkallaðri byltingu um heim allan í meðferð sjúkra. Hún tók þátt í Krím-stríðinu árið 1854 sem hjúkrunarkona. Áhrif hennar og álit hafði mjög mikla þýðingu, og eitt sinn voru ráð hennar svo mikils metin, að hún fékk að ráða því, hvaða maður var valinn sem hermálaráðherra! Hún hlaut heiðursmerki iivarvetna og var elskuð af öllum, sem til hennar þekktu. Nafn hennar mun aldrei gleymast. Því að hið sanna nafn hennar var Flor- ence Nightingale, og hún var oft nefnd Konan með lampann. Sú saga, sem hér hefur verið sögð, er sönn saga frá bernsku- árum þessarar frægu hjúkrunarkonu. 124 HEIMILISBLAÐlP

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.