Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1962, Side 22

Heimilisblaðið - 01.05.1962, Side 22
Vorið er komið og bæði menn og málleysingjar fyllast gleði yfir komandi birtu og yl. Einn- ig bangsamir tveir hér á myndinni hafa fyllst vorgleði, sem brýzt út í f jörugum dansi. > í London hefur verið hafin framleiðsla á nýrri tegund af sundbeltum. Það er í fjórum hlutum, sem hver um sig er samsettur sjálfstæðum pípum, fylltum lofti, sem eiga að gera beltið alveg öruggt. Hér sýna tvær ungar stúlkur nýjungina. > < Hin 58 ára madame Bidault, sem handtekin hefur verið af frönsku öryggislögreglmini, var áhrifamikill meðlimur frönsku andspyrnuhreyfingarinnar á stríðsárunum. Ástæðan til handtöku frú Bidaults er sú, að maður hennar, Georges Bidault, fyrrverandi utanríkis- og forsætisráðherra, hefur flú- ið Frakkland, sennilega sem OAS-leiðtogi. < Eins og stendur eru hnefa- leikar ekkert vinsælir víðast hvar, en þessi þriggja ára snáði lætur það ekkert á sig fá. Hann ætlar að verða hnefaleikari og þykist vera viss um að hann verði heimsmeist- ari. Þetta bláa auga sitt hefur hann samt ekki fengið í hringnum, heldur var það hurðarhúnn, sem lék hann þannig. Hin geðríka griska leikkona Melima Mercouri, sem varð heimsfræg fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Aldrei á sunnu- degi“, er fjölhæf listakona. Hún hefur einnig unnið mik- inn sigur í París fyrir leik í „Floru“ Jules Dassins. Hér er hún að tala við appelsínuna í því hlutverki. > < Þetta er franska leikkonan Frangoise Christophe, sem kynnir nýja tízku. Skyldu margar konur taka upp þessa tízku eftir henni? 110 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.