Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1962, Side 38

Heimilisblaðið - 01.05.1962, Side 38
Við, sem vinnum eldhússtörfin Flestum þykir ostur góður ofan á brauð, en við kunnum yfirleitt heldur lítið fyrir okkur, þegar um eiginlega ostarétti er að ræða. Það er mikið af eggjahvítuefnum í ost- inum, einnig er A og D vítamín og kalk og fosfór. Það er þess vegna full ástæða til að neyta osts í ríkara mæli en við gerum nú. Hér eru þrjár góðar og auðveldar upp- skriftir á ostaréttum. Bætið við uppskrift- irnar eins og yður hentar, þannig að þér fáið einmitt þann rétt sem fjölskyldunni líkar bezt. Ostabrauð. Ristið 6 þunnar fransbrauðsneiðar á annarri hliðinni og leggið þær síðan í eld- fast fat og látið ristuðu hliðina snúa upp. Blandið 175 gr osti, sem er skorinn í ten- inga, 1/4 dl pilsner, ofurlítið salt og pipar, 1 tsk. sinnep, í pott. Setjið hann yfir hæg- an eld og látið bráðna og hrærið stöðugt í. Bætið 1 eggjarauðu út í og hrærið vand- lega. Hellið þessu yfir brauðið og stingið réttinum inn í ofn í nokkrar mínútur við 275° Berið réttinn fram í eldfasta fatinu. Ef maður á aspargas, þá er mjög gott að setja það á brauðið áður en ostinum er hellt yfir. Ef rétturinn á að vera matar- meiri, þá er ágætt að leggja linsoðið egg á hverja brauðsneið og setja mjólk í osta- sósuna í staðinn fyrir pilsner. Með þessu er tóma.tsalat mjög gott. Ostagratin. Smyrjið eldfast fat með matarolíu og leggið 2 stóra tómata sem eru skornir í sneiðar og sömuleiðis 2 niðursneidd harð- soðin egg. Dreifið salti og papriku yfir- Þeytið 3 saman og blandið 2 dl af mjólk út í. Hellið þessu í fatið og dreifið yfir 4— 5 msk, af rifnum osti. Bakið réttinn í ofni í 25 mín. við 250°. Þessum rétti má breyta á margan hátt. Til dæmis með því að leggja þunnar fransbrauðssneiðar í fatið, það má gjarna nudda hvítlauk yfir þær fyrst — hellið eggjablöndunni yfir og dreifið rifna ostinum yfir. Bakið réttinn við 275° í 10 mín., og berið hann með tómatsalati. Og svo er hér réttur sem kallaður er Pizza. Blandið 300 gr hveiti við 11/4 dl af volgn vatni, 1 msk af olíu, ofurlitlu salti og hnoð- ið þessu saman. Smyrjið tertuform sem ei' ca. 22 cm með 1 msk matarolíu og jafnið deiginu í formið. Leggið olíuborinn smjör- pappír og hreint handklæði yfir, og látið deigið á hlýjan stað í 1 klukkustund. Sker- ið á meðan 4—5 tómata og 150 gr af osti í þunnar sneiðar. Leggið helminginn &f ostasneiðunum á deigið og tómatsneiðarn- ar þar ofan á og dreifið ofurlitlu af salti og pipar yfir. Leggið 6—7 sardínur yfir og látið að lokum afganginn af ostasneið- unum og látið það bíða aftur í 1 klukku- stund. Bakið réttinn síðan í 15 mín. við 250° og berið það fram rjúkandi heitt. Mokka-krans. Hér er uppskrift af mjög góðri veizlu- köku. 2 dl vatn 1 tsk sykur 100 gr smjör eða smjörlíki. Krem: 2 eggjarauður 3 msk sykur 3 msk hveiti (vel fullar) 100 hveiti 3 egg. 3 dl sterkt kaffi 1 dl þeyttur rjómi- Skraut: 150 gr flórsykur. 1. msk kaffiduft og ofurlítið sjóðandi vatn, og þetta hræri^ allt saman. Deigið er búið þannig til, að vatn, sykuJ HEIMILISBLAÐl® 126

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.