Heimilisblaðið - 01.05.1962, Síða 42
Kalli og Palli voru afar hreyknir af grasblettinum
sínum. En þeir hugsuðu þá lítið um að hirða hann og
slá, svo að nú var komin órækt í hann. „Við verðum
að slá hann“, tautaði Palli. „Tja“ — þrumar Kalli, „ég
er nú latur við slíkt, og þar að auki eiga þeir að vinna,
sem ánægju hafa af því — og auðvitað eru það Mett0
geit og börnin hennar." Og síðan kölluðu þeir á Mettu
og kiðlingana hennár og þau átu safaríka grasið
blettinum þeirra Kalla og Palla.
„Sjáið þið til, Kalli og Palli, Þið getið hæglega not-
að mig fyrir skotskifu, þegar þið æfið ykkur með ör
og boga“, stingur Jumbo upp á, „þvi húðin á mér er
svo þykk“. Þetta fallast litlu bangsarnir strax á. Nú
finnst þeim að þeir séu reglulegir villidýraveiðimenn.
En þegar leikurinn hefur staðið stutta stund, reli
Jumbo upp vein og tárin streyma niður kinnarh'
„Hættið, hættið!" Kalli og Palli óttast að fillinn W
meitt sig. „Nei, alls ekki,“ skellihlær Jumbo, "in
kitlaði bara svo — hi-hi-hi...“