Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1982, Síða 12

Heimilisblaðið - 01.08.1982, Síða 12
gerði hann sér grein fyrir því, að á hverri sekúndu gæti hann átt von á að hitta þann mikla og óþekkta: sjálfan dauðann! Hann þeytti því upp skápdyrunum með braki og brestum og skálmaði fram í stof- una. Hann sá útundan sér manninn og konuna á miðju gólfi, en leit ekki einu sinni í átt til þeirra, heldur hraðaði sér niður stigann, greip frakkann sinn í fram- hjáleiðinni og hljóp niður húströppurnar. Líkt og óður væri skálmaði hann út eftir götunni og nam ekki staðar fyrr en hann stóð móður og másandi fyrir framan hinar réttu húsdyr í næstu hliðargötu. „Hvílík upplifun!“ stundi hann. „Maður ætti kannski að gera lögreglunni viðvart, en líklega er þó bezt að láta þessi skötuhjú gera upp sínar sakir í friði. Láta þau skjóta hvort annað ef þau kæra sig um. Ef fólk getur ekki tekið skynsamlegar á hlutun- um en að láta byssuna ráða, þá er það því sjálfu að kenna og á ekki betra skilið. Það munaði minnstu að maðurinn hleypti á mig úr hólknum . . . Á morgun fer ég heim í mitt hús, til garðsins míns og dýranna minna og starfsins míns.“ Konan hafði rekið upp skelfingaróp, þegar skáldið hljóp út úr felustað sínum, og maðurinn hafði starað á hana hvumsa. „Nei, hvað er nú þetta,“ hafði hann sagt. „Svona raunverulegt þarf þetta nú ekki að vera. Hvers vegna hefurðu sett þennan manngann inn í skápinn?“ „Ég hafði ekki hugmynd um, að hann var þarna,“ svaraði hún. „Þetta hefur að líkindum verið þjófur, sem hefur falið sig þarna þegar hann heyrði okkur koma upp. Honiun hlýtur að hafa liðið alveg skelfi- lega þarna inni á meðan við æfðum tilsvör- in í leikritinu." „Manngarmurinn," hló eiginmaðurinn við. „En við skulum leyfa honum að sleppa með skrekkinn. Og þarna geturðu séð, okk- ur gengur stöðugt betur og betur að æfa hlutverkin. Það var rétt af mér að láta okkur æfa þetta einu sinni enn. Nú er þetta orðið næstum fullkomið, og ég er viss um, að þetta atriði í leiknum verður mjög áhrifaríkt. En nú skulum við láta þetta gott heita í kvöld, en halda áfram á morgun ef með þarf.“ Það var leikstjórinn Paul Valeur sem sagði þetta við hina fögru leikkonu Maria Orlant, sem innan viku átti að leika aðal- hlutverkið í SverSi afbrýðiseminnar í Boulevard-leikhúsinu. Hvorugt þeirra hafði minnstu hugmynd um, að þau höfðu ekki aðeins verið að æfa eitthvert áhrifa- mesta atriðið í öllu leikritinu, heldur um leið gefið hálf-afdönkuðum og lífsþreytt- um leikritahöfundi þá hugmynd, að til- breytingarsnautt mannlífið sé, þrátt fyrir allt, þess virði að lifa því. 96 HEIMILISB LAÐ I Ð

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.