Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1982, Page 13

Heimilisblaðið - 01.08.1982, Page 13
HETJAN HRÆDDA SMÁSAGA EFTIR EDWIN BALMER Þetta var áhrifamikil sjón — sólg-ljá- andi og snjóhvítur fjallstindurinn, og dökku mannverurnar þrjár sem bar við lóðréttan flöt efstu hamraveggjanna. Þetta var í meira en fjögur þúsund metra hæð, en samt voru enn eitthvað um tvöhundruð metrar upp á hæsta tind Tecla, hæsta fjalls á þessari breiddargráðu. Síðasti spölurinn upp á tindinn var of brattur til þess, að þar gæti fest snjó; þar var of hált og lárétt til þess, að ann- að fyrirfyndist en íshellan sem glóði hvar- vetna þar sem sólin skein. Ætla mátti, að þarna væri sérhverri manneskju ófært upp að fara — ef ekki vildi svo til, að þama voru einmitt þrír menn á ferð. Þama stóðu þeir nú uppi á efsta hjallanum, með gín- andi og ógnvænlegt hengiflugið fyrir neð- an sig. Þessi sjón fékk Margaret Ramsay til að blöskra. Hún kom auga á þá neðan úr jám- brautarlestinni sem mjakaðist hægt upp um fjalllendið. Vitíi mátti, að mönnunum var ljóst, í hvílíkri hættu þeir voru staddir; því að í kíki sínum sá Margaret, að þeir þokuð- ust ekki nema fetið, með hjálp handa jafnt sem fóta, og erfitt var í rauninni að gera sér grein fyrir því, hvort þeir vora á upp- leið eða niðurleið. „Ég býst við, að þeir séu á leiðinni nið- ur,“ tautaði hún um leið og hún rétti kík- inn að ferðafélaga sínum. Walter Bateman tók við kíkinum og starði í áttina að mönnunum uppi við hinn fjarlæga fjallstind. ,,Onei,“ sagði hann hálf óþolinmóður. „Þeir eru að klöngrast upp á við, bjánamir þeir ama.“ „Bjánarnir, Walter?“ sagði Margaret dálítið ásakandi í spumartón. „Já, þeir ættu að láta slíkt eiga sig — þetta er ekki annað en heimskulegt ofur- lætisflan. — En komdu nú og seztu héma hjá mér,“ sagði hann biðjandi og rétti út hendurnar í átt til hennar. Hún var sjálf hissa á því, að hún hik- aði andartak. Því að nú áttu þau hvort annað í rauninni. Einmitt í dag hafði hann játað henni ást sína — þá ást, sem hún hafði látið sig dreyma um í sjö ár og í raun álitið vonlaust að öðlast. „En mennirnir þama uppi, Walter!“ Hún svipaðist enn um í áttina að tindinum. „Já, hvað með þá, ljúfan mín?“ „Þeir eru bundnir í streng. Ef einn þeirra hrapar, fer ekki hjá því, að hann dregur hina niður með sér í fallinu. Eg get ekki séð, að neinn þeirra hafi tæki- færi til að skorða sig.“ „Hvað ætli þú hafir vit á svona löguðu?“ „Ég las um þetta í Chamonix. Á meðan pabbi lifði var ég einu sinni komin hálfa leið upp í Mont Blanc.“ „Varstu það? I rauninni? Hvenær var það?“ „Ég var fimmtán ára þá, það var löngu áður en þú kærðir þig um að vita hver ég var —“ svaraði hún og hélt áfram að beina kíkinum í áttina að fjallgöngumönnunum. „Ég hef alltaf kært mig um að vita hver þú værir, Margaret. Hvernig gengur þeim annars þarna uppi? Leyfðu mér að sjá.“ Hann virti fyrir sér mennina. „Það lítur HEIMILISB LAÐ I Ð 97

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.