Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1982, Síða 23

Heimilisblaðið - 01.08.1982, Síða 23
ur, að Max gat leyst hann, teymt hann út og- bundið hann við tré. Elísabet hjálp- aði Kippu út og batt hana við trjástofn, en hljóp síðan til að hjálpa Max við að koma ungneytinu undir bert loft. Innan fimm mínútna var engin skepna eftir í húsinu. Slökkviliðið var nú komið á vettvang og gerði hvað það gat til að slökkva eldinn sem fljótast, en öllum var ljóst að ekki væri hægt að slökkva í fjósinu, og mann- fjöldinn beið þess enn við lokaðan inngang- inn að heyra dauðastunur dýranna þegar þakið félli. Ekkert þeirra vissu hvað átt hafði sér stað að húsabaki. Það var því ekki lítil undrunin, þegar það nú upp- götvaði hvar Max og Elísabet voru að elt- ast við hrædd ungneytin út um allt hlað og út á engi. Óli bóndi, ráðsmaðurinn og allir hinir hlupu nú til og aðstoðuðu þau, — og hver getur lýst gleði bóndans, þeg- ar hann kom líka auga á verðlaunatudd- ann sinn, sem stóð þarna tjóðraður við hlið- ina á Kippu litlu. Nú varð Max að segja frá því, hvernig þetta allt gekk til, því að Elísabet hafði séð þann kost vænstan að laumast burtu þegar hér var komið. Hún var þeirra skoðunar, að nú myndi hún þó fá bágt, úr því að upp komst um leynd- armál hennar. Það fer ekki á milli mála, að Max hrós- aði borgarstelpunni á hvert reipi. Honum mæltist svo vel, að jafnvel ráðsmaðurinn lét hrífast og sagði loksins þegar Max tók sér hvíld: „Já, það er eins og ég hef alltaf sagt, þetta er sveimér vaskleika-stelpa!“ Það var stolt og ánægð lítil stúlka, sem nú fékk að vita það, eftiv að búið var að þvo henni og greiða, að Óli bóndi væri alls ekki reiður út í hana fyrir það sem hún hafði gert í leyfisleysi. Hann hafði jafn- vel hrósað henni fyrir hugrekkið — og heitið því að gefa henni sparisjóðsbók með álitlegri upphæð, þegar hún yrði fermd. Síðasta hugsun hennar áður en hún sofn- aði var þó sú, að nú gæti hún þó sagt að hún hefði upplifað eitthvað spennandi í sveitinni, þegar hún kæmi aftur í skólann í haust. Furstinn frá Monaco, Rainier III. og furstynja Grace ásamt uppkomnum syni og dóttur voru hér á ferð í sumar. Mon- aco er dverkriki á austurströnd Frakklands. HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.