Hljómlistin - 01.06.1913, Page 7

Hljómlistin - 01.06.1913, Page 7
HLJÓMLISAIN C9 byggjast á. Hún á ekki að einangrast og iðkast einungis sjálfrar sín vegna, lieldur á hún að haldast stranglega innan vébanda lieildarþroska einstaklingsins og þjóðmenn- ingarinnar. Það er einmitt þella sem ungir og upp- rennandi nemendur í tónlistinni verða að æfa sig á að skilja, að grundvöllurinn sem bygt er á, verður að vera stöðugur og óveill; því að þá fyrst mætisl það í æðri einingu sem í tljótu bragði virðist líll samrýmanlegt: að ná sem frjálsustum pérsónublœ, en vera þó ósvikinn liður í framsœkjandi menningu samiímans. H. J. Síra Stefán 1 Vallanesi og kirkjusöngurinn. III. Þeir, sem ritað hafa æfisögur síra Stefáns, minnast lítið á sönglist lians, en gela þess að eins, að hann liafi verið fyrirtaks söngmaður, raddmaður mikill og hafi innleitt mörg fögur útlend lög og sett nokkur saman (kompón- erað) sjálfur. Af lögum þeim, sem eru eftir hann sjálfan, þekkjum vér fá, en þó eru til tvö af vorum fallegustu sálmalögum, sem kölluð eru melodiur hans, og mun því með réttu mega eigna honum þau, enda eru þau ekki til í eldri íslenzkum bókum, og í út- lendum bókum hatá þau ekki fundist. Þessi lög eru: »Herra, þér skal heiðr og lotning greiða« og »Kær Jesú Kriste«. Þessi lög eru hvort öðru fallegra og í fylsta kirkjustíl, enda mun síra Stefán liafa ætlað þeim að verða kirkjusöngslög, þótt undir þeim hafi snemma verið ortar visur verald- legs efnis, en svo var og með mörg önnur l'alleg sálmalög, að undir þau voru ort ýmis- leg tækifærisljóð og gáskavísur, sem ungling- ar sungu saman sér til skemtunar. Fyrra lagið, sem hér er nefnt, er að öllu leyti frumlegt, en það er hitt ekki, því »Kær Jesú Krlste« er búið til upp úr gömlu, út- lendu lagi frá 14. öld, og er það fyrst við latínskan föstusálm: »Laus tibi Christe« eftir ókunnan liöfund.1) Hjá oss er lagið kunn- ugt frá Hólasálmabókunum og Grallaranum við sálmana: »Oss má auma kalla«, »Ó vér syndum setnir« og »Heiður og háleit æra«. í útlendum kirkjusöngsbókum er lag þetta enn og hefir frá því fyrsta þótt eitthvert hið fegursta föstusöngslag; hjá oss var það bæna- dagasöngur. Mikið tekur lag síra Stefáns fram gamla laginu, og eins og það er sungið nú, er það hið fegursta fagnaðar- og lofsöngs- Iag, sem til er íslenskt og stendur í engu að baki lögum Dr. Ph. Nicolais; »Vakna, Síons verðir kalla« og »Gæzkuríkasti græðari minn«, sem kölluð eru konungur og drotning söng- laganna. Fjöldamörg úllend sálmalög og kvæðalög hefir síra Stefán innleitt hér, sem fólkið hefir lært og sungið. Eigi er ólíklegl að sum kvæðalögin séu eftir hann sjálfan, eða þá með breytingum hans á eldri lögum, sem ekki þekkjast nú; en mcð vissu verður ekki sagt um það, því höfunda laganna er ekki gelið hér fremur en annarslaðar var í þá daga, en bragarhættirnir eru nýir og finnast sumir þeirra hvergi annarstaðar en í kvæðum síra Stefáns. Utlend sálmalög hefir hann innleitt mörg, og frumkveðið, en þó ol'tar þýtt sálma undir þau, og eru þessi hin helstu: 0 Jesú klár. Þýðing þýzka sálmsins »Ach Gotl und Herr«, og er það lag með ofurlítilli breytingu orðið þjóðlag hjá oss við bið al- kunna kvæði síra Stefáns: »Björt mey og hrein«. Þýðing sálmsins hefir aldrei verið prentuð, en upphaflega er lagið pólskt þjóð- lag, og tók tónskáldið Joh. Herm. Schein það upp í sálmalagasafn sitt 1627. Margt er manna bölið orti síra Stefán undir hið fagra lag Joh. Crúgers og er það nú orðið 1) Annar sálmur með sömu byrjun er eftir Gottskálk Vindakonung, sem myrtur var at frænd- um sínum 7. júlí 1066.

x

Hljómlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.