Hljómlistin - 01.06.1913, Side 11

Hljómlistin - 01.06.1913, Side 11
HLJÓMLISTIN 73 danskan, að nafni Gustav Hanseh. Haraldur er óefað einhver sá efnilegasti íslenzkra tón- listamanna, Hann hélt hér hljómleik í fyrra sumar er hann var útskrifaður af hljómlista- skólanum í Kaupmannahöfn, og vakti mikla aðdáun. Nú hefir hann verið í Dresden i vetur að fullkomna sig og mátti heyra mikla framför frá því í fyrra. Hann hafði öðlast meiri kraft og myndugleik auk fiminnar sem hann þegar hafði fengið mikla áður, cn nú hafði náð á sig meiri feslublæ. Með því að Haraldur er ungur, má búast við meiri per- sónuþroska hjá honum, og að sjálfsögðu verður mest gaman að lieyra hann spila, þegar hann er korninn svo langt, að hann þarf ekki að taka lengur tillit til yfirboðara sinna í skólanáminu og getur farið að ganga sínar eigin götur. Vonandi dregur hann ek.ki dám af því sem cr því miður of algengt á Þýzkalandi og víðar að gera fimleikann að svo miklu aðalalriði, að andagiftiu líði og verði að stælingu á tískunni. Gustav Hansen virðist líka að vera ágætis píanóleikari. Vegna þess að hann lék á píanó þá naul spilið sín ekki alveg eins og það átli skilið við hliðina á flygelinu sem Haraldur lék á. Þessir samsöngvar og hljómleikar hafa ver- ið fremur vel sóttir yfir höfuð og sýnir það að fólk hefir hér mikinn áhuga á tónlistinni. Líklega verður nú héðan af talsvert um slik- ar skemtanir hér framvegis, úr því að bær- inn er þó orðinn svo stór að hann ber þær sæmilega. Er enginn vafi á því að smekkur manna á lónlist hefir gott af samskonar hljóm- leikum og hér hafa verið haldnir í sumar, sérstaklega ef samvizkusamlega er valið á söngskrárnar og nægilegt lillit er tekið til þess fjölda, sem nauðsynlegur er lil að þessar skemtanir geti borið sig. H. ./. Nokkur orð um söng, einkum í Hrútafirði. Eins og kunnugt er, breiddust hin svo kölluðu nýju sálmalög út til sveitanna mest eftir það er Ari Sæmundsen gaf út leiðarvísi til að spila á langspil 1855 og Pétur Guðjolin- sen dómkirkjuorganisti og söngíræðingur gaf út sálmasöngsbók sína 1861. Því fjöldi sveita- manna, sem lagði sig eftir að læra hin nýju lög, höfðu ekki annað liljóðfæri sér til lijálp- ar en langspilið. Lærisveinar latínuskólans, sem lærðu söng hjá P. Guðjolmsen, voru íiltölulega fáir úli um land, er gátu leiðbeint mönnum í söng, svo fram lil þessa tíma hefur verið í sumum kirkjum sungið með gamla laginu. Fram yfir 1870 var lítið hugsað um að fá hljóðfæri i kirkjur; fáir þeklu liarmoníum og orgelin voru svo dýr, að ógerningur var að kaupa þau, nema þelta eina, sem var í dómkirkj- unni. Theódór sonur Olafs prófasls Pálssonar, þá á Melstað, braut þar ísinn; hann var fyrsti hvatamaður að því að hannoníum var keypt í Melstaðarkirkju 18721) og tók að sér að leika á það, án þess þó að liafa lært hljóð- færaslátl nema lítið eitt á fíólin hjá Jónasi heit. Helgasyni, og tókst lionum það þó furðu vel, var lika góður söngmaður og alt hans fólk, svo söngurinn í Melstaðarkirkju þótli fyrirmynd í þá daga, og mun þá liafa víða vaknað áhugi manna að fá hljóðfæri í kirkj- ur. Árið 1874 kom orgel eða réttara sagt harmoníum í Arnarbæliskirkju í Árnessýslu. Fyrsta harmoníum, er kom í Hrútafjörð, var þá eign Ólafíu dóttur Ólafs próf. Páls- sonar. Kom lnín með það að Stað um 1877, þegar hún fluttist þangað með séra Páli bróð- ur sínum. Var leikið á það í Staðarkirkju nokkur ár af Theódór Ólafssyni, þá verzlun- 1) Magnús konferenzráö Stepliensen, forfaðir Theódórs, kom með fyrsta orgelið til íslands og spilaði sjálfur á það í Leirár og Viðeyjar kirkjum.

x

Hljómlistin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.