Í uppnámi - 20.03.1901, Page 26

Í uppnámi - 20.03.1901, Page 26
34 Pyrsta skákdæmið, er prentað var á íslandi eða á islenzku, var þri- leiksdæmi það, er hér fer á eptir. Svart. Það kom út í FjallkonuDni (V. ár, nr. 1., 10. janúar 1888), því að það blað hafði fengið sér skákletur. Svarti hrókurinn á a4 var af ógáti prent- aður sem þriðji hvíti hrókur á borðinu, en sú prentvilla var leiðrétt í nr. 7. (8. marz), þegar ráðningin var gefin. Næsta skákdæmi var fjórleiks- dæmi í nr. 3.—4. (81. janúar). Því næst kom enn fjórleiksdæmi í nr. 7. ásamt ráðningunum á tveim fyrstu dæmunum. Fjórða og síðasta skák- dæmið, er birt var í Fjallkonunni og einnig var fjórleiksdæmi, var í nr. 17. (18. júní), en ráðningarnar á tveim síðustu dæmunum voru aldrei prentaðar. Ritstjórinn birti fangamörk þeirra manna, er ráðið höfðu dæmin, og voru þau: 0. R., M. E., S. J., Sigf. J., og S. E. Hver mundi geta gefið oss upplýsingar um, hvaðan þessi skákdæmi eru komin og hverjir eru höfundar þeirra? Hvitt mátar í 3. leik. Útlendar skáknýungar. I Monaco á norðurströnd Miðjarðarhafsins (Riviera) hafa verið haldnar kappskákar i ár. Þær byrjuðu 1. febrúar og voru þar þessir skákmerm úr fyrsta flokki: Alapin, Janovski, Tsjigorin og Winawer (Rússlandi); Marco og Schlechter (Austurríki); Mieses og von Scheve (Þýzkalandi); Reggio (Ítalíu); Didier (Frakklandi); Blackburne, Mason og Gunsberg (Englandi); Lipschútz og Marshall (Bandaríkjunum) — en þeir eru ekki allir úr allra-fyrsta flokki. Fjórir hinir frægustu taflmenn heimsins — Lasker (skáksigurvegari heimsins), Pillsbury (skáksigurvegari Atneríku), Burn og Maroczy — voru allir fjær- verandi. Forstjóri kappskákanna var Jules Arnous de Riviére, er fyrir eina tíð var helzti taflmaður Frakka, en teflir eigi framar. Hver þessara 15 manna lék eitt tafl við sérhvern hinna, og sá sem vann flest töfl, fékk hæztu verðlaunin. 1. marz voru verðlaunin veitt skákmönnunum. Fyrstu verðlaun (5000 franka) hlaut D. Janovski (ÍO1/^ leikir); önnur verðlaun (3000 franka) hlaut Carl Schlechter (9 '/2 leikir); hin þriðju (2000 franka) og hin íjórðu (1000 franka) hlutu að jöfnu Michael Tsjigorin (9 leikir) og Theodor von Scheve (9 leikir). Töflin verða að líkindum birt í sérstakri bók. * * * Ráðningar á skákdæmunum og tafllokunum koma í næsta hepti.

x

Í uppnámi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Í uppnámi
https://timarit.is/publication/436

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.