Heimir - 01.06.1907, Blaðsíða 17

Heimir - 01.06.1907, Blaðsíða 17
H E I M I R •3 „Orange" menn. Kngum skynberandi manni heföi nokkurn tíma komiö til hugar að brígsla því félagi um ofmikla „logic", og hefði það þó náð hylli heldri mannanna ekki síður en sum önnur félög. Viðvíkjandi glórefnisfabrikkt nni þá hefðu afskifti sfn verið þau að slá úr og í, og kvaðst hann æfinlega hafa gert það hispuislaust, en þó með þeirri lipurð, sem útheimtist til að halda eða ná vinfengi, bæði þeirra sem mótfallnir voru því fyrirtæki, og eins nokkurra þeirra er veittu því fylgi sitt. Við- víkjandi fé því er fólgið mundi í Héranesi, hefði hann ætíð haft þá skoðun að finnandinn, hver svo sem hann væri, ætti að eignast það, en sjálfsagt væri að greiða af því vissar prócentur í landsjóð. Svo þegar landsjóður væri búinn að draga þar frá allan þann kostnað, sem slík innheimta hefði í för með sér, þá hefði hann ekkert á rnóti því að afgangurinn af þeim prccent- um eða parti af honum, væri varið til að styrkja glr'refnisfabr- ikkuna, eða eitthvað annað þarfiegt, þó með því skilyrði að slíkar stofnanir bæru á sér eitthvert þjóðraknisn.erki. Hann endaði grein sína með því að hvetja alla unga og gamla til að taka þátt í leitinni í kveld. Það væri likindi til að eldurinn eða eldarnir nflindu brenna í nótt, en ekki víst að slíkt héldist lengi, og sitt „princip" væri að taka gæsina þegar hún gafist. Þessi umrnæli ritstjórans að „Roundabout" vcklu allmik'a cftirtekt. Dáðust menn að ritsnilli hans og því hversu djarfmannlega hann ritaði. Var ekki um annað talað í þoipinu það sem eftir var dags en hæfileika ritstjórans að „RoundaLout", og svo hvernig menn ættu að haga sér um nóttina til að handsama log- ana í Héranesi. Þegar rökkva tók, var fjöður og fit uppi í Windenough. Allir sem skriðið gátu ætluðu að taka þátt í leitinni, en ekki höfðu þorpsbúar konrið sér sarnan um neitt „plan" eða aðferð hvernig leitinni skyldi hagað. Afleiðingarnar urðu þess vegna þær, að hver hagaði sér eins og honurn þótti bezt við eiga.— Stuttu eftir dagsetur voru allir þorpsbúar komnir út í Héranes. Héldu þeir sig aðallega áarmegin, því nesið er þar miklu þurara. Ekki leið á löngu þar til sú íregn barst út rneðal leit- armanna, að logi hefði sézt blossa upp nálægt miðju nesi.

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.