Heimir - 01.07.1907, Qupperneq 11

Heimir - 01.07.1907, Qupperneq 11
H E I M I R 35 sjálfum, heldur en ineð þeiin, sein vér skoðuin að á einhvern hátt ha!i unnið til þess, vegna þess að vér æfinlega skoðuin oss í fyrrnefnda hópnum. Eg atla sjálfur að sýna dæmi hveinig þeir sanna að hluttekning vor nái að eins til þeirra, sem nánir oss eru.hlutfallslega meiri eða minni eftir því hve nánir þeir eru oss. Salvador Macri var hengdur hér í Winnipeg þann 15. jan- úar. Vér tókum meiri hluttekningu í afdrifum hans, heldur en þótt einhver annar ítali hefði verið líflátinn suðurá Italíu.vegna þess að hann var nær oss í rúmi. Ef Islendingur heima á Is- landi hefði verið líflátinn á sama tíma, þá hefðuin vér tekið meiri hluttekningu í afdrifum hans heldur en Italans, sem líf- látinn \ar í sömu borg og vér búum í, vegna þess áð hann stóð oss nær að skyldleika. Ef annar Islendingur hefði orðið fyrir sönru afdrifum hér í Winnipeg, þá hefðum vér tekið enn meiri hluttekningu í hans kjörum, því hann var nær oss en hinn hvað rúm snerti; ef hann heföi verið okkur skyldur, þá enn meiri hluttekningu, og því skyldari því meiri. Jafnvel hefði hluttekn- ing vor, vegna eigin hagsmuna, getað orðið á þann hátt, að vér hefðum alls ekki viljað kannast við hann og sagt eins og Pétur forðuin: „Ekki þekki eg hann". I trúarbrögðunum segja þeir, að hið sama komi einnig fram. Menn séu ætíö aö vinna fyrir launum. Þeir segja að þau trúarbrögð, sem sérstaklega telji sér til gildis sínar siðferð- is kenningar, t. d. Kristnin og Buddism, þá séu menn dygðugir vegna launa. Budda segir, ef þú vilt ekki verða íyrir þessu, þá máttu heldur ekki gera þetta, en kristnir kenna: „Dæmið ekki svo þér veröið ekki dæmdir, því eins og þér dæmið aðra eins verðið þér líka dæmdir". Sælir eru þeir sem gera þetta eða hitt, því þeir munu umbun hljóta. Það er eigingirni (self- interest), sem gerir Buddatrúarmanninn dygðugann. Hann á ekki von á því að lenda í Nirvana, án þess að hann breyti vel. Það er eigingirni sem gerir hinn kristna mann góðan, því hann býst við eilífri sælu að launum, en helvítiskvöluin ef hann breytir illa. Það er eigingirni, sem rekur fríþenkjarann til að vera dygðugann. Reynslan hefir sýnt honum, að ráðvendnin er raungæfust. Þeir halda því fram, að hver einasti einstaklingur

x

Heimir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.