Heimir - 01.07.1907, Síða 16

Heimir - 01.07.1907, Síða 16
40 H E I M I R Mjög sjaldan mun þa5 þó vera, aö fulloröni maöurinn hafi eins hreina og ómengaöa gleöi af því aö skoöa þetta listaverk eins og hann haföi, þegar hann var barn, og var aö horf-a á sterku litina og grófu drættina. En vill hann skifta á tilveru sinni við þaö þsgar hann var barn? Þaö er óhætt aö fullyröa, aö slíkt á sér mjög sjaldan stað. Þaö væri þó nytsemi („utility"). Ef barniö er lukkulegra yfir sínu leikfangi, heldur en fulloröni maö- urinn er yfir listaverkinu, og hann, fulloröni maöurinn veit þaö, en vill þó eklci skif.ta um, þá er eitthvaö annaö sem ræöurþeirri tilfinningu en hagsvon. Hvað er þaö þá sem jæöur þessu? Þaö er hans eigin meövitund um aö hann er kon:inn á æörastig —meðvitund um þaö, aö hann hefir þroskast frá því aö hann var barn, og hann vill ekki inissa þann þroska, þrátt fyrir þaö, þótt í boöi væri á móti meiri lífsgleöi, heidur en þessi þroski gæti veitt honum. Hiö sama er aö segja um söng eða músik. Ef að þér haf- iö veitt því nokkra eftirtekt, þá munuð þér hafa tekiö eftir því, að á söngskemtunum eöa hljóöfæraskemtunum, ef söngur eða músík er af nokkurri list, aö þaö kemur aldrei fyrir aö neinn, sem virkilega hefir vit og unun af söng, fari þaðan út meö galsa og hlátri, nema því að eins aö eitthvert annaö óskylt atriöi hafi vakiö þaö. Meira aö segja, þaö vakna hjá honum tilfinningar, sein standa nær gráti en hlátri, en hinn aftur á móti, sem minna vit hefir, er kátur. Vill nú sá sem meira vit hefir á söng, en sem þó ekki getur hlustaö á söng án þess aö vikna, skifta ásigkomulagi við þann sem minna vit hefir, en viknar. aldrei, hversu vel sem sungiö er? Nei, alls ekki. Því þá ekki? Þaö væri þó nytsemi. Því vill hann ekki skifta viö þann, sem hefir meiri nautn at lífinu? Þaö er af sömu ástæöum og í hinu tilfellinu. Hann veit aö hans skoöun og tilfinningar eru æöri en hins, og þess vegna vill hann ekki skifta þrátt fyrir, þótt hægt sé að færa rök fyrir því aö slíkt væri hagnaður. Einu sinni var eg staddur á leikhúsi og var leikinn sjón- leikur nokkur. Þaö sátu tveir menn hjá mér, sem eg þekti. Þaö sat sinn viö hvora hlið mér. Þegar fram í leikinn sótti, kom þar atriði fram, sem í sjálfu sér var ákaflega átakanlegt

x

Heimir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.