Heimir - 01.07.1907, Síða 21
H E I M I R
45
un lætur bátinn bruna djarft um boöa og sker:
J’á skal eg sii:ll um sjóinn allan sigla nreð J'ér.
O}? seinast fegar svartii nóttin sígur á lönd,
og dökkar hrannir hrynja um knör og hvergi sör strönd,
þá láttu bátinn horfl halda, hvert sem hann ber:
og eg skal sæll á svarta djúpiö sigla með þér.“
Þa5 er óþarfi að benda á, að hér er ekki veriö a5 hugsa
utn eigin hagsmuni (Utility).
Davíö konungur og dómstólarnir.
Nú um tíma hefir umfaraprédikari evangelisku kyrkjunnar
hér í landi, Dr. Alexander Torrey, verið a5 halda bænasam-
komur og afturhvarfsprédikanir í borginni Montreal. Dr. Tor-
rey er frægur afturhvarfs prédikari og hefir ferðast allvífa, þar
á meöal til Engiands á umliðnu ári. Hefir honurn verið líkt
viö Moody og Wesley og aöra fræga evangeliska prédikara frá
fyrri og síðari tímum.
En ekki ósvipaö þeim er hann mesti íhaldsmaöur í trú-
málaskoðununr og tekur alt sem óyggjandi, er kyrkjan hefir
nokkru sinni haldiö viö.
Þar í borginni er maöur, senr heitir Norman Murry, efna-
maður allvel látin, en talinn fríhyggjandi í skoöunum, og eitt
sinn sektaður fyrir útgáfu á ritum. Dr. Torry réöst á rnann
þenna í ræöu, er hann flutti í St. James Meþódista-kyrkjunni
þar og líkti honum við Davíð konung. Hann sagði að Davíð
hefði verið stór syndari, en yðrast og fengið fyrirgefningu.
Eins gæti Mr. Murry öðlast fyrirgefningu, þótt hann væri fang-
elsis sekur fyrir rit sín og kenningar, ef hann vildi snúa sér til
trúar.