Heimir - 01.09.1907, Side 5

Heimir - 01.09.1907, Side 5
H E I M I R 77 að þeir eru í höllum og hreysuin lífið, sem veitir Líf, hin alsjá- andi sál mannlífsins alls á jörðunni. Þegar maður hugsar um þetta allt, hvernig veiður þá lífið, og til hvers er það ? Eg veit það er hugraun, þegar velja skal um það, að vera eöa vera ekki, ef hið fyrtalda kostar þrautir, baráttu og stríð. En þó er það meining mín, að margur sé alt af of hræddur. Það er hægt að lifa sem frjáls maður sínu æðsta og fullkomnasta í þessum heimi, án þess það kosti stóra eymd, vansælu og kvöl. Og enginn veit, hvað þor og von megna, nema hann treysti á það, og enginn veit í hvaða vali mesta á- nægjan er, nema hann gangi allar þær brautir. Til þess að vera sannur maður, þarf ekki að borga fyrir það með píslarvættis dauða. Vér vitum að kröfurnar eru miklar, sem til þeirra eru gerð- ar, sem kjósa þann kostinn, að vera menn, í hvaða umboði, í hvaða sýslan, í hvaða embætti sem þeir eru. Það er freisting í því, að reyna að riá takmarkinu, sem margur átítur að sé ein- göngu það, að verða víðþekktur, mikið ræmdur, ogTelþóknan- legur sem flestum, með því að fara kringum steínuna, og það er hægt að ná öllu þessu með því. En margar kröfurnar, sem gerðar eru til manna, er vilja vera menn, eru svo heimskulegar, að þær þurfa alls ekki að takast til greina. Hugmyndir manna um manndóm eru svo misjafnar, og oft svo öfugar, að sá er oft mestur maðurinn, sem minnst líkist þeim skoðunum. Einn krefst þess af þér eða mér, að vér séum heilagir einverumenn, snúum frá oss öllum heimi og oss frá öllum mönnum og gjörum ekkert annað en biðja guð um frelsun vorrar einu litlu sálar.En er nokkur manndómur í því, að draga sig út úr fögnuði lífsins, út úr baráttu lífsins, út frá ábyrgð mannfélagsins, hlaða utan um sig veggjum á allar hliðar og setjast að á eyðistöðum sem einlífismenn. Fyrst og fremst væri oss öllu fólki tjón að missa nokkurn vorra meðbræðra eða aö nokkur þeirra gjörðist alhei- lagur, því þá um leið hætti hann að berjast með oss vorri mannfélagsbaráttu. í öðru lagi er mönnunum svo varið, að hver einn verður að vera bæði fullkominn og ófullkominn, hag- sýnn og skammsýnn allt í einu. Það er það, sem virðist setja

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.