Heimir - 01.09.1907, Page 9

Heimir - 01.09.1907, Page 9
H E I M I R 81 unarefniö sé að vera eöa vera ekki. Trúin, sem getur ekki ver- iö til neins annars en aö lyfta mönnum á œöra hugsana stig,— hún er von um tímanlega og eilífa framför, og hún er hugar- helgun þeirra, sem þiá aö viröa fyrir sér hið háleita í tilverunni —leita þaðan styrks, áræöis og hjálpar og skilnings í baráttunni hér,—hún ætti sannarlega aldrei að veröa vesalt atvinnumál, heldur svölun, þegar menn eru orönir of þreyttir og vilja snúa huganum til einhvers annars en þess daglega, og leita hvíldar. Og kæru vinir, sá maöur, er vill vera, veröur að vera sann- ur maöur, meö engu oflofi á sjálfum sér, aldrei þykjast af sín- um hégómlega heilagleik, heldur af því aö hann hafl orðið réttu máli aö liöi. Þaö er hrós og hverjum manni sæmd. Og trúna ætti hann aldrei að nota sem bragö til aö safna fé eða flæröar- máli símalandi vina. Það er aldrei nokkrum manni óholt, aö líkjast aö einhverju meistaranum frá Galílea. Hvergi er þess getiö, að hann hrósaöi sér af heilagleika sínum né spyrnti viö öörum mönnum vegna synda þeirra. Og aldrei fyrirvarö hann sig, aö vera meö, vera góöur samferöamaður og bróðir öllum, er hann mætti. En þó heyrist þér hjá piltum og stúlkum önnur eins hégómaorö í garö frjálstrúaðra manna, er sýnt geta þó eins þjóöernislega og þjóöfélagslega göfugt framferði og nokkrir—: „Eg skammaöist mín, aö láta sjá mig meö þeim." Og þó stend- ur þetta fólk ekki hærra en svo, aö þaö er í einhverri orþódoxri kyrkju aö nafninu, játar kenningar hennar meö vörunum, en neitar þeim meö hjartanu. Er þetta aö láta þaö sarna lunderni búa f sér og Jesú Kristi? Skilja menn oröið svona kenningar meistarans? Eg kvarta ekki yfir þeim skilningi, en mér finnst hann aumlegur og rangur. Sá, sem vill vera maöur, hefir um annað meira aö hugsa en flokkanöfn. Heimurinn er stærri en nafn hans, mannfélag- ið meira en öll þess óteljándi flokka og þjóöa nöfn, en þó er guö alheimsins ennþá mestur. Trúðu frjáls á guö hins góöa. Trúöu mannlegum veikleika til þess aö hann vilji ogséaðkeppa aö guödómlegum fullkomleika og réttlæti, og vertu meö í þeirri ferö. Það er aö vera maður og barn föðursins á himnum.

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.