Heimir - 01.09.1911, Page 11

Heimir - 01.09.1911, Page 11
HEIMIR 7 legu umskiftin, sem fylgdu útbreiðslu rómverska keisararíkisins, eyðilögðu borgar-ríkin og utn leið tilbeiðslu borgar-guðanna og jafn\el trú borgarbúanna yfirleitt á þau. Framför vísinda og heimspeki, jafnvel fyrir daga grísku menningarinnar, hafði þœr afleiðingar, að hinir mentuðu efuðust um og stundum opinber- lega neituðu hinni arfteknu fjölgyöistrú; og síöar gróf bún und- irstöðuna undan trú fjöldans. Mannssálirnar voru samt ekki undir það búnar að láta sér nægja eintóma neitun. Þær leituðu fyrst að einhverju ákveðnu og föstu í áttina til allsherjar trúar. Fjölgyðistrúarbrögð hinna ýmsu þjóða áttu að styðja og sanna hvor önnur, með því að sýnt vœri, að sömu guðina vœri að finna í þeim öllum, en að eins með mismunandi nöfnum; heimurinn var eitt samfélag, sem að vísu hafði ekki einn guð, en sama guðafjöldann alstaðar til að dýrka. Hreyfing í þessa átt, sem finst í ritum Heródótusár og sem notaði sér álit það, sem hin eidgamla egypzka fjölgyðistrú naut, virtist fá stuðning frá út- breiðslu átrúnaðar á egypzka, frýgiska og sýrlenzka guði víða um lönd grísku menningarinnar. En gengi hennar varð henni að falli. Sú hugmynd, að guðir þjóðanna vœru hinir sömu, einn og allir sama eðlis, endaði með einhverju sem var ekki fjöl- gyðistrú; en þar sem hún svifti hvern guð út af fyrir sig öllum sínum sérstöku eiginleikum, framleiddi hún að eins neitandi ein- gyðistrú. Nafn guðs var eitt; hann var guð allra manna og þjóða; guð, sem varð fundinn með guðfræðilegum rökleiðslum, en sem ekki varð fundinn þar sem hver og einn, er hans leitaði, hafði hans mesta þörf, þó máske án þess að vita það, í eigin hjarta þess sem leitaði. Hálf-óljós en þó ákveðin meðvitund um hvað hina neikvœðu eingyðistrú, sem var aileiðing hinnar almennu eininear tilhneig- ingar, skorti, hafði í för með sér hetjutrú. Sameiningin milli guða og manna, sem menn í þorpsfélaginu og borgarríkinu höfðu trúað að ætti sér stað, og sem með hrörnun fjölgyðistrú- arinnar eða tilbeiðslunnar hafði eyðilagst, var nú fundin í hinu guðdómlega í manninum, sem hetjutrúin sá í mikilmennum er báru höíuð og herðar yfir aðra menn. Þessi trú á máske rætur sínar að rekja til gríska átrúnaðarins á verndaranda

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.