Heimir - 01.09.1911, Síða 21
HEIMIR
17
“Kom þú bróöir kœri,
ó, kom í liö með mér’’.
“Enn er margt aö iðja,
enn er dimt og kalt;
ern er beiskju blandið
bróður-þeliö alt".
Ó! kom þú, bróðir kæri,
Kristur hjálpar þarf!
— I mannlífinu, maður
mundu, að hans er starf.
Jón Laxdal.
Hugmyndasambönd.
Allir vita að ein hugsun getur vakiö aðra ósjálfrátt og án
nokkurrar fyrirhafnar Oft Þegar maður hugsar um eitthvað,
sem í sjálfu sér er ekki mjög þýðingarmikið umhugsunarefni í
þann svipinn, reikar hugurinn frá því aö einhverju öðru. Stund-
utn er þetta hugaryrek svo mikið, að maður er á örstuttum tíma
kominn að alt öðru efni og máske alveg ólíku því, sem maður
byrjaöi að hugsa utn.
Ef vel er aðgætt, sést að hjá mönnum með heilbrigðu sálar-
lífi fylgir hugarreikið vissum lögum. Með öðrum orðum, það
eru eðlileg sambönd milli hugmyndanna, hversu fjarskyld sem
sú síðasta kann að vera hinni fyrstu. Hugmyndasamböndin eru
mjög þýðingarmikið atriði í sálarfrœðinni, en um leið eitt hið
flóknasta og erfiðasta viðfangs.
Hugsum oss, til dæmis, að maður byrji að hugsa um papp-
írsörk, sem liggur á borði fyrir framan hann. Fyrstu áhrifin,
sem pappírsörkin heflr á heila hans, eru áhrif þau, sem augað
og sjóntaugin flytja. Pappírsörkin er hvít og hún hefir vissa