Heimir - 01.10.1911, Blaðsíða 2
26
HEIMIR
Úr Helgisögum ítala.
I.
Hversu Makaríus frá Alexandría sá fjölda óhreinna anda
í kyrkju, er freistuðu manna á ýmsan hátt.
Eftir sögu Hérónými helga.
Makaríus Jvaldi í þeim .stað er nefndur var Skýþía. var þaö
stórt munkasetur um tvær dagleiðir frá Nítríaklaustri, lá þangað
enginn vegur og varð að eins komist þangað með því að miða
áttina við stjörnurnar. Þar var vatns skortur, vatnið fúlt en þó
eigi bragðilt. Þar bjuggu fáir munkar aðrir, en þeir er allra voru
helgastir, því svo var staðurinn ægilegur að fáir fengu haldist þar
við. Þeir lifðu í mikluin kærleika sín á meðal, og eins gagnvart
þeim munkum er komu að heimsækja þá. Og vil ég segja frá
einu dæmi, þessa kærleika, er þeir auðsýndu. Makaríus, er eitt
sinn var gefinn kvistur, með vínberjum, tók berin og gaf þau
strax öðrum, er hann áleit sér meiri þurfamann. En þessi. gerði
guði þakkir fyrir örlyndi Makaríusar, áleit að annar munkur
þyrfti þeirra meira með en hann og gaf þau honum. Þannig
gengu þau milli allra í klaustrinu unz að lokum þau komu til
Makaríusar aftur, er þá sþynjaði hve mikill kærleikurinn og hóf-
semin, var á meðal þeirra, var örvaður til meiri ástundunar
en áður.
Trúaðir menn hafa sagt frá því, er heyrðu það af hans eigin
vörum, að eitt sinn kom djöfullinn, búinn eins og munkur, drap
á klefadyr hans og sagði: “Stattu upp, Makaríus, látum oss
ganga til kyrkju, þar sem allir munkarnir eru”. Og Makaríus,
er þekti hann, svaraði: “Þú lyga-óvinur alls sannleika, hvaða
samfélag átt þú með söfnuði bræðranna?” Þá sagði Satan, er
hann sá að hann var uppvfs orðinn: “Vitið þér þá ekki, að á