Heimir - 01.10.1911, Blaðsíða 21
H E I M I R
45
um þessa árs. Orsök hennar er framsóknarþrá hinnar yngri
kynslóöar, sérstaklega þeirra, sem mentun hafa fengiö í^5ðrum
löndum. Stjórnin hefir lofaö umbótum, en ekki komiö neinnm
verulegum umbótum á. Þar viö bætist hatur hinna innlendu
Kínverja á Manchu keisaraættinni og fylgifiskum hennar, Frem-
ur lítiö hatur á útlendingum hefir gert vart við sig, enda munu
uppreistarmennirnir yfirleitt hlyntir útlendum áhrifum og þeirn
sem þau flytja.
Snemma í síöastliönum september hélt Mónistafélagið á
Þýzkaiandi fund í Hamborg. Um tvö þúsund manna komu þar
saman. Prófessor Haeckel í Jena, sem er aðalstofnandi félags-
ins, var ekki viðstaddur, og fóru fundarmenn því til Jena til að
heimsækja hann. Prófessor Ostwald, nafnkendur þýzkur vís-
indamaður, stýröi umræöunum. Hann komst þannig að orði í
ræöu, sem hann hélt: “Viö Mónistar erum andstæðir allri opin-
beraðri trú og öllum hugmyndum um yfirnáttúrlega hluti”. A-
kveðið var aö beita öllum áhrifum til aö fá aðskilnaö ríkis og
kyrkju og kyrkju og skóla komiö í kring það fyrsta á Þýzkalandi.
Síöastliöinn maí voru vígð þrjú ný hliö á Búddhatrúar must-
eri einu í Kyato í Japan. Þessi hlið höföu eyöilagst fyrir hér
um bil 50 árum, er núverandi keisaraætt komst til valda. Vígsl-
„ unni er lýst sem einum hinna viðhafnarmesta helgisiða viöburöi,
sem sögur fara af, jafnvel í Austurlöndum. Dögum saman þyrpt-
ist fólk saman í musterinu til að hlusta á bænir og ræöur. Aö
minsta kosti ein milljón er haldiö aö hafi komið þangaö. Hliðin
eru mjög fögur og voru gefin af þremur auðugum kaupmönnum
í Japan.