Heimir - 01.10.1911, Blaðsíða 20

Heimir - 01.10.1911, Blaðsíða 20
44 H E I M I K sé valdur aö mörgum glæpum, sem hafi átt sér staö til og frá uin Bandaríkin í sainbandi við verkföll. En vinir ’nans segja, aö þetta sé aö eins tilraun til aö hnekkja verkamannafélags- skapnum; húsiö hafi sprungiö upp af slysi og sprengivélar þær, sem fundust í grend viö þaö, hafi verið látnar þar af leynilög- reglumönnutn í þjónustu blaðeigandans. Máliö er búiö aö standa yfir meira en mánuö og enn hefir ekki tekist að fá kviödómend- ur, sem báöar hliðar séu ánægðar meö. Eíalaust stendur mál þetta yfir marga mánuöi og veröur mjög merkilegt. Aöalverj- andi málsins er Eugene Darrow, frægur lögmaður frá Chicago, sem varöi þá Moyer, Pettibone og Heywood í svipuöu máli í Boise, Idaho fyrir nokkrum árum og vann þaö mál. Mjög viröist enn þá vera tvísýnt um, hvernig stríöinu milli Ítalíu og Tyrklands lyktar. Italir hafa átt fult í fangi meö aö halda bænum Trípólis, sem þeir náöu í fyrsta áhlaupinu. Tyrkir hafa reynst verri viöureignar á landi en líklegt var í fyrstu. Ara- bisku flokkarnir, sem berjast meö Tyrkjum eru hraustir og her- skáir og láta ekkert fyrir brjósti brenna, aö sagt er, ef þeir leggja út í “heilagt stríö’’, stríö fyrir Múhameöstrúna. Ymsar sögur um grimdarverk á báöar hliöar hafa borist úr stríðinu og veriö bornar til baka. Meþódista kyrkjan hélt nýlega allsherjar þing í Montreal (Ecumenical Conference), þar komu saman erindrekar frá flest- um löndum heimsins, þar sem meþódista trú er til. Á þingi þessu virðast skiftar skoöanir viðvíkjandi hærri kritíkinni hafa komið í ljós. Meiri hluti þeirra, sem tóku þátt í umræðunum voru því hlyntir að biblíu gagnrýni væri viötekin, en varast aö láta hana hafa of mikil áhrif á trúarskoöanirnar. Aðrir samt sem áður létu þá skoðun í ljós, aö biblíu gagnrýni í öllurn mynd- um væri skaðleg fyrir trúna.— Meþódista kyrkjan skiftist í marga flokka, sem hafa nokkuð mismunandi kenningar og siði, en á þessum allsherjar þingum eru allir flokkarnir sameinaðir. Uppreistin í Kína er efalaust einn af merkilegustu viðburö-

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.