Kirkjuritið - 01.05.1939, Síða 24
Mai.
Fylling tímans.
I.
Þegar fylling tímans kom, segir Páll postuli í bréfinu til
Galata, 4,4, sendi Guð son sinn, fæddan af konu, fæddan
undir lögmáli.
Hver er þessi fylling tímans?
Hér í Galatabréfinu er þetta orðatiltæki alveg skiljan-
legt, og má ekki, eða þarf ckki leggja inn i það neina víð-
tæka söguheimsþekilega merkingu. Tveim versum fyr hef-
ir Páll verið að ræða á líkingamáli um liin miklu uin-
skifti, sem orðin eru við komu Krists. Hann liefir líkt
mönnunum við son, sem á unga aldri er settur undir um-
sjón fjárhaldsmanna og ráðsmanna til þess tíma, er fað-
irinn hefir ákveðið. Þegar þessi tími, sem faðirinn hefir
ákveðið, rennur upp, breytist aðstaða sonarins fullkom-
lega. Ilann verður fullveðja og frjáls og losnar undan
umsjón annara. Og það er enginn vafi á þvi, að „fylling
tímans“ merkir hér ekkert annað lijá Páli en þetta sama,
þ. e. þann tíma, sem faðirinn hefir ákveðið. Þegar tím-
inn var fullnaður, sá tími, sem faðirinn hafði ákveðið, að
sonurinn, þ. e. mannkynið, skyldi hætta að vera undir
hinni ströngu gæzlu, þá kom breytingin. Og breytingin
var fólgin í því, að hann sendi son sinn. Koma Jesú Krists
markar því þessi fullkomnu tímamót í mannkynsævinni.
II.
En þó að þannig heri vafalaust að skýra þetta orð á
þessum stað, þá er hitl jafnvíst, að Páll er sannfærður
um, að þessi fylling tímans var ekki valin af handahófi-
Það var ekki gerræðisleg ákvörðun, heldur var tíminn