Kirkjuritið - 01.05.1939, Síða 38
Maí.
Innlendar fréttir.
Biskupsvígsla.
AkveðiS hefir verið, að séra Sigurgeir Sigurðsson verði að
forfallalausu vígður biskupsvígslu í Dónikirkjunni í Reykjavík
sunnudaginn 25. n. m. Fyrirrennari hans, dr. Jón Helgason
biskup, mun framkvæma vígsluna.
Prestastefnan.
Að iokinni biskupsvígslunni mun prestastefnan hefjast, eða
næsta dag, 2(i. Er ráðgert, að hún standi, eins og venjulegt er,
í 3 daga. Séra Benjamín Kristjánsson mun prédika við setningu
hennar. Nokkur erindi uni kirkju og kristnilíf landsins munu
flutt, en aðalmál prestastefnunnar verður: Framtíðarstarf kirkj-
unnar fyrir æskulýðinn.
Aðalfundur Prestafélags íslands
verður að öllu forfallalausu haldinn i Reykjavík fimtudaginn
29. júní, i húsi K.F.U.M., og liefst kl. 9,30. Má vænta þess, að
prestar telji vel fallinn stað og stund, þar sem þeir munu koma
mjög margir lil Reykjavíkur um þetta leyti hvort sem er, til
biskupsvígslu og prestastefnu. En vegna fundahaldanna daginn
áður, er ætlast til þess, að fundurinn standi ekki lengur en einn
dag. Auk þess sem venjuleg félagsmál verða rædd, svo sem út-
gáfustarf Prestafélagsins, ])á munu skila álili að nokkuru leyti
báðar nefndirnar, sem kosnar voru á síðasta aðalfundi til þess
að taka til athugunar sjúlfstæði kirkjunnar og Codex ethicus
presta fyrir hönd hinna fyrnefndu mun séra Þorsteinn Briem
prófastur leggja fram til umræðu drög að frumvarpi lil laga um
kirkjuþing og reifa málið. Fyrir hönd hinnar síðarnefndu mun
séra Gisli Skúlason hafa framsögu.
Fjörutíu ára afmæli K.F.U.K.
Kristilegl félag ungra kvenna í Reykjavík átti 40 ára afmæli
28. f. m. Séra Friðrik Friðrikssön stofnaði það og var frain-
kvænulastjóri þess mörg ár. Félagið hefir unnið gott og þarft
verk. Forstöðukona þess er nú Áslaug Ágústsdóttir biskupsfrú.
Prestskosning á ísafirði
fór fram i ísafjarðarprestakalli sunnudaginn 23. f. m. Kosningu
hlaut séra Marinó Kristinsson með 009 atkvæðum. Var kosn-
ingin lögmæl.