Kirkjuritið - 01.12.1948, Blaðsíða 89
FRÉTTIR,
Kirkjudagar.
í Hvammssókn, Skarðssókn, Dagverðamessókn voru haldn-
ir kirkjudagar á þessu sumri, þar sem safnaðarfólk kom
saman til að vinna þegnskaparvinnu við prýkkim kirkna og
kirkjugarða.
í Hvammssókn var unnið við prýkkun kirkjugarðs, blóma-
og trjáreitur kringum kirkjuna stækkaður og kirkjuhús og
kirkjugripir fægðir og hreinsaðir. Tré voru gróðursett.
í Skarðssókn voru steyptir stöplar í kirkjugarðsgirðingu
og tröppur steyptar að kirkjuhúsi. 1 Dagverðamessókn, Stað-
arfells- og Garpsdalssókn vom tré gróðursett í kirkjugarða, og
fyrirhugað er að fram fari samskonar kirkjudagur í Saur-
bæjarsókn.
Aldarafmælis Svalbarðskirkju
var minnzt með veglegri guðsþjónustu 22. ágúst síðastliðinn.
Séra Hálfdan Helgason, prófastur,
kom heim aftur í haust úr löngu ferðalagi um Danmörku.
í Kaupmannahöfn flutti hann messu fyrir íslendingum, sem
þar eiga heima.
Prestar stofna slysavarnadeildir.
Þrír prestar, séra Einar Sturlaugsson, séra Jón M. Guðjóns-
son og séra Þorgrímur Sigurðsson, hafa nýlega stofnað all-
margar slysavamadeildir.
Utanfarir presta.
Séra Guðmundur Sveinsson frá Hvanneyri stimdar nú í
vetur framhaldsnám í guðfræði við Kaupmannahafnarháskóla.
Séra Sigurður Kristjánsson frá ísafirði mun dveljast í vetur
á Englandi og kynna sér kristilegt æskulýðsstarf.
Júbílprestur.
Séra Friðrik Hallgrímsson, dómprófastur, varð júbílprestur
12. október. Hann gegnir enn prestsstarfi fyrir Holdsveikra-
söfnuðinn í Kópavogi, en til þess vígðist hann 12. okt. 1898.
Sama vígsludag á séra Sigtryggur Guðlaugsson, prófastur
að Núpi í Dýrafirði. Hann fékk lausn frá prestsskap fyrir 10
árum.