Kirkjuritið - 01.05.1966, Blaðsíða 28

Kirkjuritið - 01.05.1966, Blaðsíða 28
218 KIRKJURITIÐ Passíusálmunum hafa ávallt stafað, — að liorfa aftur í aldirnar og virða lítillega fyrir okkur liverja einstaka útgáfu þeirra- Sumir vildu e. t. v. segja, að þar væri aðeins um þurra, strembna og leiðinlega upptalningu að ræða. En það er ekki rétt. -— Þar kemur í raun og veru fram hin sanna lýsing á dómi þjóðarinnar um Passíusálmana. Og sú lýsing er saga, — „fuH af lífi og krafti“, eins og prófessor Magnús Jónsson kemst að orði í liinu mikla riti sínu um Hallgrím Pétursson. Og þær at- liuganir, sem nú verða gerðar á útgáfusögu Passíusálmanna, eru að verulegu leyti byggðar á hinni ýtarlegu og gagnmerku skrá prófessorsins um það efni. Af eiginliandarriti Hallgríms af Passíusálmunum, sem varð- veitzt hefir, er þess getið á titilblaði, að fullgengið sé frá þeim árið 1659. En það er þó ekki fyrr en áriS 1666, sem fyrsta prent' un þeirra lítur dagsins Ijós. Af þessum drætti má geta sér þesS til, að forráðamenn Hólaprentsmiðju, sem þá var eina prent- smiðjan hérlendis, eins og kunnugt er, hafi ekki verið sérstak- lega hjartsýnir á, að viðtökur og vinsældir yrðu úr hófi fram- Og þó má fullvíst telja, að Hallgrímur hafi sjálfur lagt aH* það kapp, er hann mátti, á að koma þeim á prent. Til hinnaf sömu glámskyggni útgefenda bendir það og, að Passíusálmun- um skyldi ekki vera treyst til að standa einum sér í hók, hebh11' voru þeim valdir til fylgdar aðrir sálmar, — Píslarsálmar eftJr sr. Guðmund Erlendsson, — og eru þeir prentaðir fyrst. Pa sálma þekkir nú enginn maður lengur, — enda mun það niáh' sannast, að þeir liafi staðið Passíusálmunum óralangt að baku þótt Gísla biskupi Þorlákssyni og þeim Hólamönnum hafJ þóknazt að eftirláta þeim fyrsta sætið. Um þessa píslarsálma, sem eru 7 að tölu, segir Jón biskup Helgason í Kirkjusögu sinni, að þeir séu „fátæklegt og andlaust linoð.“ „Er það vægast að orði komizt dómgreind og smekkvisi Gísla biskups til lítils sóma,“ — segir biskup, — „að senda ut Passíusálma Hallgríms í öðru eins föruneyti.“ Fullur titill þessarar 1. prentunar Passíusálmanna er svo- liljóðandi:„Historía pínunnar og dauSans Drottins vors JeSl1 Kristí. Eftir textans einfaldri hljóðan í sjö sálmum yfirfarin a[ síra Guðmundi Erlendssyni. En af síra Hallgrími Péturssym stuttlega og einfaldlega útþýdd, með sínum sérlegustu lærdóius'

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.