Kirkjuritið - 01.05.1966, Page 50

Kirkjuritið - 01.05.1966, Page 50
INNLENDAR FRÉTTlR Biskup íslunds messaði í dómkirkjunni 15. maí s. 1. og var þessari messu útvarpaS um hin Nor'Surlöndin 22. s. m. Tíðkast sá siður að' útvarpa einni rnessu árlega frá hverju Norðurlandanna til kynningar. Er það i fyrsta sinn, sem það' gerist liéðan. ASallundur Kirkjukórasambandsins verður haldinn miðvikudaginn 22. júní n. k. kl. 8.80 síðdegis i I kennslustofu háskólans. Séra Agúst SigurSsson, settur prestur á Möðruvöllum, liefur verið' kosinn jiar lögmætri kosningu. Séra Bragi FriSriksson var kosinn lögmætri kosningu í hinu nýja Garða- prestakalli. Kirkjukórasamband Reykjavíkur efndi til kirkjutónleika í flestum kirkj- um borgarinnar í vikunni 15.—21. maí s. i. Ymsir einsöngvarar sungu þar einnig en prestar fluttu ávörp. Var þetta vel sótt og því vel fagnað. Arni Arinbjarnarson liéll orgeltónleika í Kópavogskirkju ú uppstigningar- dag. Kirkjan var fullsetin og vakti leikurinn hrifningu áheyrenda. Tón- leikar þessir voru haldnir á vegum MinningarsjóSs Hildar Ólafsdóttur, en hlutverk lians er að efla liljómlistar- og sönglíf í sambandi við Kópavogs- kirkju. GarSakirkja var endurvígð 20. marz s. 1., eins og ákveðið var. Verður væntanlega frá því sagt í næsta liefti. Hajin var bygging tveggja kirkna í Reykjavík, laugardaginn 7. maí s. l-: Bústaðakirkju og Grenáskirkju. Báðum eru valin fögur stæði, og á háð- um stöðum voru fyrstu skóflustungurnar teknar við hátíðlega athöfn. LEIÐRÉTTING: Framan á kápu síðasta heftis var skakkt mánaðarnafn. Átti að standa aprd í stað marz. Biður prentsmiðjan kaupendur afsökunar á þessum i*ns" tökum. KIRKJURITIÐ 32. árg. — 5. hefti — maí 1966 __ Tímarit gefiS út af Prestafélagi íslands. Kemur út 10 sinnum á ári. Verð kr. 150 árð- Ritstjóri: Gunnar Árnason Ritnefnd: Bjarni Sigurðsson, Jón Hnefill Aðalsteins- son, Kristján Búason, Sigurður Kristjánsson. Afgreiðslu annast Ragnhildur ísaksdóttir, Hagamel 43' sfmi 17601. Prentsmiðja Jóns Helgasonar.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.