Jólasveinn - 24.12.1917, Síða 9
JÓLASVEINN.
9
morgun, þegar hann sér þennan nýja félaga, sem við
höfum fengið? Á morgun — já, þá ætla ég að byrja
nýtt líf. — Ég fer burt úr París og til Bretagne. —
Þar er gamla, hrörlega höllin, sem foreldrar mínir
áttu. Uinsjónarmaður hennar hefir oft skrifað mér,
að ég skuli koma heim og endurbæta hana og setj-
ast þar að. Það er tryggur og góður karl, sem ég á
mikið að þakka. Og konan hans, hún Katrín gamla,
væri ágæt fóstra handa henni Jóhönnu litlu.
— Nú heyrist kluklcnahringing. Það er verið að
hringja til morgunmessu. — Hann laut niður að
sofandi barninu og kysti það á ennið. En nokkur
tár hrundu úr augum hans niður í skeggið, þar sem
fyrstu gráu hárin voru farin að koma í ljós.
Hugur hans fyltist í einu bæði af alvöru og gleði.
Nýtt og betra líf lá nú fram undan honum.
99
Veslings Jakob“.
Sönn saga.
fSTRÖNDINNI milli Norwich og Yarmouth á
Englandi gekk maður með fjögra ára gamalt
barn við hlið sér. »Ég er svangur«, sagði barnið.
»Pegiðu, krakki!« svaraði faðirinn. »Ég er svangur
og mér er ill«, tók barnið aftur til máls. »Þegiðu,
krakki; heyrirðu það?« svaraði faðirinn af nýju.
»Get ég útvegað þér brauð hérna á sandinum?«
Aumingja barnið þagnaði, er það heyrði þessi orð,