Framtíðin - 01.05.1909, Page 11

Framtíðin - 01.05.1909, Page 11
F lt A M T 1 Ð I N 43 flýttu sér að stiganuni, en Lárus var fyrst- ur upp á pallinn. Feikna stálás hékk hátt uppi laus niður úr krók lyftivélarinnar. Keðjan hafði losnað. Annar endi ássins hafði fallið, og kaðallinn, sem átti að stýra með, hafði farið af. Og kaðallinn á hinum endanum hafði kipst úr höndum mannanna, sem áttu að stýra ásnum. Og þarna dinglaði hann laus, og mátti búast við á hverri stundu að hann losnaði úr keðjunni, sem hann hékk í, og íæri svo á enda niður í gegnum alla byggingar-grindina, gegnum gólfin hálfbúin, þar sem fjöldi fólks var við verk sitt. Þá sá Lárus, sér til skelfingar, hvar faðir hans lá á grúfu klofvega á bit- anum, sem hann hafði verið að vinna á. Asinn, sem losnað liafði, hafði lent í hann og gert hann meðvitunarlausan. En auk þess hafði höggið losað um bitann, sem hann var á, svo að hann var nær því hrokkinn af stallinum í hornstoðinni, sem var verið að festa hann við. Ef ásinn lausi skyldi rekast í hann aftur, þá var hann óðar hrokkinn af, og Pétur Malotie farinn, ef hann dytti ekki af fyr, um leiö og hann raknaði úr rotinu. Verkstjórinn, sem var rólegur og algáð- ur, var þegar búinn að hugsa sér, hvað gera þyrfti. Nú var tækifæri Lárusiv komið . Fullorðiml eða þungur maður mátti ekki fara út á bitann. Þvi hann gat þá losnað af hristningnum. “Komdu fljótt, drengur!” kallaði verk- stjórinn. Lárus lét ekki standa á sér. Var sam- stundis búinn að taka af sér skóna. Verk- stjórinn fleygði um hálsinn á honum stór- t'm hring af kaðli, og lét svo annan minni °fan á. “Bittu hann fastan við bitann, smeygðu kaðli um ásinn, og sleptu svo kað- alendanum niður. Farðu hægt eftir bit- anum. Mjakaðu þér áfram svo hann hristist ekki — mundu það, vegna föður þins og sjálfs þín. Hæ! þið þarna niðri. Tumi! aðvaraðu verkamennina !” J'umi þaut að stiganum og varaði verkamenn:na við, sem voru fyrir neðan. Hinir stóðu og horfðu á 'Lárus. Hann tók vel eftir því, sem verkstjórinn sagði, þreií i kaðal, sem hékk niður úr bita fyrir ofa-i þann, sem faðir hans lá hreyfingarlaus á, handfangaði sig upp eftir honum upp að stallinum, þar sem innri endi bitans lá, sem faðir hans var á, hafði sig upp á hann og stóð svo þarna uppréttur. Tuttugu og fimm fet þurfti að ganga eftir bitanum 5 þumlunga breiðum og skjálfandi, og 263 fet frá jörðu, með ekkert til stuðnings nema rólegt höfuð ! “Allir þegi‘ Truflið liann ekki! Hann veit, hvað gera skal!” kallaði verkstjór- inn. Hann tók eftir því, aö tveir menn ætluðu að kalla til hans og gefa honum bendingar. Með augun á föður sínum þumlungaði Lárus sig áfram, og stóð við endrurn og sinnum til þess að kyrra bitann. Alt í einu létti mönnunum, sem liorfðu á drenginn. Hann sat klofvega á bitanum og var að binda föður sinn fastan. Menn- irnir ætluðu að hrópa, en verkstjórinn aftraði því. “Bíðið þangað til hann talar!” bauð hann. “Horfið framan í hann! Ef and- litið er rólegt, þá megið þið öskra af ykk- ur höfuðið, ef þið viljið; ef ekki, þá þeg- ið eins og steinar! Það er kjarkur í snáða. En hann getur svimað. Sko ! hann stend- ur á fætur.” Lárus sagði ekki orð, leit ekki heldur niður fyrir sig. Hann hafði annað að gera. Hann var búinn að binda föður sinn, en nú þurfti hann að ná til ássins, sem laus var. Fyrst dró hann undur hægt upp annan fótinn, svo hinn. Haldið, sem hann hafði um föður sinn, hjálpaði honum til þess að komast upp. Hann skreið yfir hann, og stóð svo uppréttur. Hópur af verkamönn- um, sem komnir voru að, störðu á hann með öndina i hálsinum. Aftur þumlungaði hann sig áfram. Nær og nær komst hann hornstoðinni. Loks- ins náði hann í hana, hélt annari hendinni um hana, sneri sér svo hálft við, og veif- aði til mannanna. En þau hljóð, sem heyrðust frá þe'm! En að eins augna- blik. Hann var ekki búinn, tíminn naum- 1

x

Framtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framtíðin
https://timarit.is/publication/460

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.