Fríkirkjan - 01.01.1899, Blaðsíða 8
4
fraravegis hingað í áttina og hætti ekki að styðja málið raeð
góðum og viturlegum tillögum sínum. En að hér á landí
skuli ekki vera til kirkjulegt rit nema eindregið á mótí frí-
kirkjunni, það er hneixli; og tvöfalt hneixii að slíkt blað kall-
ar sig „Verði ]jós!“
fó er það ekki þetta eitt, sem nú knýr mig til að hjóða
löndum mínum þetta nýja blað. Eg hneigist mjög til frjálsrar
rannsóknar á kristindóminum yfir höfuð, bæði að því er kenn-
inguna snertir og allt fyrirkomulag kirkjunnar; slíka rannsókn
álít eg með öllu nauðsynJega til að viðhalda hinu sanna trú-
arlífi. bæði hjá einstaklingunum og í söfnuðunum.
Margir snúast öndverðir gegn allri slik'ri rannsókn og
skoða hana jafnaðarlega sprottna af vantrú, þarsem það þó
er og hlýtur að vera eðli hinnar sönnu trúar að vilja ekki
trúa í blindni, heldur leitast við að gjöra sér sem Ijósasta grein
fyrir innihaldi trúarinnar og grundvelli.
Komist einhver við þessa rannsókn að einhverri annari
niðurstöðu enn áður hefur kennt verið eða haft fyrir satt, og
gjöri þessa niðurstöðu heyrum kunna, þá mun optast mega
heyra raddir um vantrú, guðleysi og árásir á kristindóminn.
Petta er gamalt og nýtt mein í kirkjunni.
Margir ágætir sannleiksvottar hafa látið líf sitt fyrir það
að þeir gátu ekki að einhverju leyti aðhyllst það form fyrir
trú og siðum, sem slegið hafði verið föstu í kirkjunni og
höfðu djörfung til að framfylgja sannfæringu sinni.
Nú er að vísu ekki lengur hætt við að nokkur þurfi að
láta líf sitt fyrir slíkar sakir. En það er hæt-t við öðru; sé
hin frjálsa rannsókn barin niður með ofstækisfullum aðsúg
þeirra, sem halda fast við hið gamla form, gegn hverjum þeim,
er kemst að einhverri annari niðurstöðu, þá hlýtur það, ef
ekki að deyða, þá að minnsta kosti að hnekkja mjög iífinu í
kirkjunni, og verða til að eíia þar annaðhvort blinda ogdauða
trú eða áhugaleysi og hreina vantrú.
Eg vona að öllum sé ljóst að eg á hér við frjálsa rann-
sókn innan þeirra eðlilegu takmarka, sem af því leiða að öll
trúin er byggð á guðs opinberaða orði. Frjálsa rannsókn guðs
orðs, frjálsa rannsókn við ljós guðs orðs á allri kenningu og