Fríkirkjan - 01.06.1902, Blaðsíða 10

Fríkirkjan - 01.06.1902, Blaðsíða 10
90 vin minn og elska hann, og eru sifelt að spyrja hann ráöa og fá hjálp, þar sem erfitt er yfirferðar. Hann þreytist aldrei að hjáipa þeim og brosir svo undurblítt um leið og hann þurkar af þeim tárin. Stundum fer einhver þeirra út af veg- inum, en vinur minn kailar þá óðara til hans, og snúi hann þá ekki við, fer hann sjálfur til hans og reynir að fá hann á veginn aptur. Eg sá fyrir skömmu mann koma með stóran bagga á bakinu. Hann var allt af að detta og komst ekkert áfram. „Littu á þennan mann*, sagði eg við vin minn, „því ætli hann komi ekki með byrðina til þín? Þú bauðst honum þó áðan að lótta af honum byrðinni". „Hann hefur líklega gleymt því. Far þú og segðu honum, að eg sé fús að hjálpa honum“. „Heldurðu hann trúi mér betur en þér sjálfum?“ „Far þú og reyndu: þú getur sagt honum, hvað eg hef gjört fyrír þig“. Einu sinni varð eg ósáttur við einn samferðamanna minna, það var nú raunar út af litlu; Yið litum kuldalega hvor til annars allan daginn, en um kvöldið þurftum við báðir samtímis að biðja vin minn um ýmislegt. Hann tók eptir, að við vorum þurlegir hvor við annan, og lagði hann þá hend- urnar á höfuð okkar og sagði: „Þið eruð báðir á sama vegi að sama takmarki, hvers-vegna viijið þið þá ekki vera vinir og létta undir hvor með öðrum. Hef eg ekki sýnt ykkur báðum umburðarlyndi, og langar ykkur ekki til að líkjast mér? Sólin fer bráðum að ganga undir, látið hana ekki ganga undir yfir yðar reiði“. Þessi orð gátum við ekki staðizt, við litum hvor á annan og tókumst i hendur. Það er viða mikið ryk á veginum, og verð eg því opt óhreinn á fótunum. Eg kvartaði um það við vin minn. „Komdu og þvoðu þér,“ sagði hann og benti á kristaltæra uppsprettu lifandi vatns. Mér þótti fjarska vænt um að geta þvegið þarna af mér öll óhrein- indin. Rétt á eptir sá eg mann koma gangandi. „Hann er óhreinni en eg var,“ hugsaði eg með mér. Vinur minn, sem sér ætíð, hvað eg hugsa, sagði þá: „Farðu og segðu honum að koma hingað og þvo sér.“ „Já, en ef eg nú fer aptur út í rykið, þá verð eg óhreinn

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.