Fríkirkjan - 01.06.1902, Blaðsíða 15

Fríkirkjan - 01.06.1902, Blaðsíða 15
95 á því borið, og þar sem svo margir andlegrar stéttar menn eru saman komnir, hefur séra Friðrik Friðriksson að mest.u leyti einn barizt fyrir því. En nú er hann ekki lengur einn. Nú hefur hann sér við hlið fjölskipaða stjórnarnefnd, og þar fyrir ofan þriggja manna tilsjónarráð. Hér kom sem sé í vor, eptir áskorun séra Friðriks, aðal- framkvæmdarstjórinn fyrir alþjóðasambandinu milli þessara kristilegu unglingafélaga. Sambandsstjórnin hefur heimili sitt í borginni Genéve á Svisslandi, og er maður sá, er hingað kom, yfirliðsforingi (oberst-lieutenant) í her Svisslendinga. Hann er frakkneskur að ætt og uppruna og heitir Charies Fermaud (frb.: Sjarl Fermó). Móðurmál hans nr því írönsk tunga, en auk þess talar hann sem móðurmál sitt bæði þýzku og ítölsku, er ganga jöfnum höndum við frönskuna á Sviss- landi. Ennfremur mælir hann á ýmsar aðrav tungur, því að hann hefur víða um heiminn farið. Hér talaði hann á ensku og dönsku; ensku miklu betur og eigi öllu lakar en Englend- ingur eða Skoti; danskan var aptur á móti léleg, en þó talaði hann fyrirstöðulaust. Erindi þessa manns var að koma skipulagi og rekspöl á kristiiegt féiag ungra manna hér á landi. Hélt hann hér tvo fyrirlestra um þetta efni, auk þess sem hann talaði á ýmsum öðrum samkomum. Tíminn var stuttur, sem hann mátti vera hér; en þó ferðaðist hann lítið eitt um landið, hélt fyrirlestra og stofnaði unglingaíélög á ýmsum stöðum. Meðan hann dvaldi hér í Reykjavík, var skipuð stjórnar- nefnd sú og tilsjónarráð, sem áður er um getið. í stjórnarnefnd- inni eru: Jón dócent Helgason (formaður), Knud Zimsen verk- fræðingur (varaformaður), Haraldur Níelsson kandidat (ritari), Ditlev kaupmaður Thomsen, Stefán myndaskeri Eiríksson — „auk hins sjálfkjörna framkvæmdarstjóra félagsins séra Friðriks Friðrikssonar" (V. Lj.). Nefnd þessa skipaði séra Friðrik sjálfur, og skulum vér eigi um segja annað enn það, að oss virðist honum að einu leyti hafa verið mislagðar hendur, nefnil. þar sem hann kjöri tvo samhenta og sprenglærða biflíukritikara i nefndina, en er

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.