Verði ljós - 01.07.1896, Qupperneq 13

Verði ljós - 01.07.1896, Qupperneq 13
125 eða ríkm- sem hann er, vöru eða verkfæri mcð þessu nafni. Nú er það viðurkent sein óbrigðul sannindi, að hver vera með manns- eðli sje persóna með vitund og vilja, sem haíi rjettindi ekki síður en skyldur. En hvernig heíir þessi skoðuu breyzt þannig í með- vitund manna? Fyrir áhrif kristindómsins, scm býður húsbændun- um: „Yeitið þrælunum það, sem rjett er og sanngjarnlogt, og mun- ið til þess, að þjer eigið og drottinn á himni“ (Kól. 4, 1), og gcfur öllum játendum sínum þessa meginreglu: „Hjer er ekki Gyðingur nje Grískur, ekki þræll nje frolsingi, ekki karl nje kona, því þjer eruð allir eitt í .Tesú Kristi“ (Gal. 3, 28). E>að mætti lengi halda þaunig áfram, cn vjer skulum ckki þreyta lesendurna á að telja upp meira af því, sem kristindómurinn hefir komið til lciðar, enda væri oss ómögulegt að telja upp þús- undasta liluta þess. Aðeins viljum vjcr benda á, að kenning krist- indómsins um guðsmyndareðli mannsins og siðferðilega takmark, um kærleika til guðs og manna sem hið æðsta boðorð, heíir borið allar siðferðilcgar framfarir og menningu mannkynsins, og að hin kristna trú hefir gjört ólærða vcrkamonn (postulana) að kennifeðr- um mannkynsins, hcfir á öllum öldum vakið hjá hinum ómentaða, jafnt sem hinum mentaða, það kærleikans hugarfar, sem ekki hefir hlífzt við að lcggja alt í sölurnar fyrir aðra, já, hefir komið mönn- um til að þola þjáningar og dauða með þolinmæði, fremur cn að afncita þessari trú, Og vjer spyrjum, er ekki þetta alt saman mik- ilvæg sönnun fyrir sannleika kristindómsins ? IV. Spádómar biblíunnar hafa ræzt, upprisa Krists or sögulegur viðburður og kristindómurinn hefir haft ómælanleg siðbóta- og menn- ingaráhrif á mannkynið. Þctta alt saman sannar guðdómleika trúar vorrar. Þó tökum vjer orðið „sanuar“ hjer ekki í sömu merkingu og þegar talað er um stærðfræðilegar eða vísindalegar sannanir, sem svo eru úr garði gjörðar, að allir menn mcð heil- brigðri skynsemi hljóta að fallast á þær. Slíkar sannanir er eigi hægt að færa fyrir kristindóminum, því það stríddi á móti cðli hans; kristindómurinn heimtar trú, en fullkomin sönnun gjörir trúna óþarfa og getur því aldrei fengizt. Hver maður verður þess vegna sjálfur að reyna áhrif kristindómsins á líf sitt, til þess að sannfærast um sannleika hans. Hver er þá jiessi rcynsla? Maðurinn finnur, að hann getur ekki af sjálfsdáðum komizt til guðs eða nálgazt hann; hann finnur til þess í samvizku sinni, að hann

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.