Verði ljós - 01.12.1896, Qupperneq 4

Verði ljós - 01.12.1896, Qupperneq 4
180 var fyrst í l»ví fólginn, að þoir urðn útlægir úr hinni jarðnosku paradís og áttu þangað ekki ariturkvæmt. Æfi þeirra varð upp frá því útlegðardvöl. En í útlegðinni höfðu þeir þar að auki þungt ok að hera, því meðvitund syndasektarinnar lá sífelt upp frá þessu sem þung byrði á samvizku þeirra og þcir fundu sig reirða af fjötrum spiltra girnda og illra ástríðna. Viljinn til hins góða var veiktur og kraptarnir til hins góða lamaðir. En útlegðardómurinn, sem hafði útilokað foreldrana frá paradís, náði einnig til barnanna og allra niðja þeirra, já, mcira að segja börnin og niðjar þeirra fæddust reirðir hinum sömu ánauðarfjötrum, sem' foreldrarnir voru fallnir í. Enginn fæddist framar til hins upprunaloga frclsis, sem hinir fyrstu ménn nutu í sakleysisstöðunni. Eæðing allra varð fæðing í spilling, fæðing til synda og þvi líka fæðing til þrældóms. Og þá er vjer enu í dag lítum á fæðingu vora án þess að líta um leið til fæðingar Jcsú og aflciðinga liennar, hljótum vjer allir sárt að finna til þess, að einnig vjcr erum fæddir til útlegðar, já, til sorglegs þrældóms í syndafjötrum. — En þegar vjer lítum til Jesú fæðingar um leið og vjer hugsum um eigin fæðingu vora, þá fær þetta annað útlit. Af náttúrunni erum vjer fæddir til þræl- dóms, en fyrir fæðing guðs sonar erum vjer fæddir til frelsis. Hann, sem einn hefir í heiminn fæðzt án syndugs eðlis, hann hefir með sinni fæðingu helgað og blessað vora fæðingu með því að opna oss aptur veg til dýrðlegs frelsis guðsbarna. Með fæðingu Jesú opnaðist paradís aptur hinu fallna Adams kyni, að vísu eigi hin jarðneska, heldur önnur æðri, himnesk og eilíf paradís. Þótt þetta líf liafi ekki við fæðing Jesú Krists hætt að vera útlegðar- staða, þá er þó frelsið fengið; útlagarnir eiga heimvon aptur. í voninni getum vjer nú þegar lifað i föðurhtndinu, af því að vjer vitum nú veginn heim þangað. Að vísu eru fjötrar spiltra girnda ekki hættir að reira mennina síðan Jesús Kristur kom í heimiun, en kraptarnir til að losast úr þeim smámsaman eru þó meiri en áður, sökum þess að þeir, sem lifa í Jesú-trú, vita, að þoir eru eigi einir að verki yfirbótar sinnar, heldur styrkir guðs heilagi andi veikan mátt þeirra þegar þeir vilja berjast. Að vísu hvílir byrði syndameðvitundarinnar cnn þá sífelt á samvizkum vorurn, en af því vjer vitum, að hann cr i heiminn borinn, sem er vort frclsi og friðþæging, þurfum vjer þó eigi að vanmegnast af örvæntingu. Guðs sonur hcfur borið syndir vorar og bætt fyrir þær. Sú trú og fullvissa veitir sálum vorum hvild og fró. Þannig getum vjer nú fyrir fæðing guðs sonar orðið frjálsir að nýju, frjálsir í voninni

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.