Verði ljós - 01.12.1896, Qupperneq 11
187
Sjá, engill jólanna er einnig og einkum frelsisitoói.
„'Rísið upp, allir þjer, sem sárast andvarpið undir ánauðarokinu,
sem stjmjið þungan undir byrði lífsins, byrði áhyggjanna, byrði
sorganna, byrði syndanna: Konungur frelsisins hefir fæðztájörðu.
Sjá, jeg flyt yöur mikinn fögnuð, sem viðkemur öllu fólki: I dng
er yður frelsctri fœddur!“ — Þetta er prjedikun jólaengilsins
Engiil jólanna líður yfir landið.
Sjá, hann nemur staðar við hvers manns dyr. Engin höll cr
svo há, ekkert hreysi svo lágt, að engill jólanna nemi þar ckki
staðar og drepi á dyr. Hann á erindi til allra, hann á crindi til
hins ríka og hins fátæka, hins hrausta og hins veikburða, til ö]d-
ungsins ekki síður en til barnsins.
En engill jólanna fær ekki að koma inn alstaðar. Víða er
honum úthýst með öllu, engli jólanna úthýst á sjálfum jólunum!
Já, það er eitt af hcimsins þyngstu meinum. Veraldarglaumurinn,
syndaglaumurinn er svo hávær innan dyra, að cnginn heyrir þegar
engill jólanna drepur á dyr. Sumstaðar fær hann að gægjast inn
rjott eitt augnablik, en það er ekkcrt næði til að hlnsta á boðskap
jólaengilsins.
Allir vilja halda jól, cn margir án jólaengilsins og án jólaboð-
skaparins.
Dapur í bragði hverfur engill jólanna frá dyrum slíkra manna.
En, guði sje lof! engli jólanna cr ekki úthýst alstaðar. Og
þar sem hann fær inn að koma og þar sem hann fær að bora fram
boðskap sinn, boðskapinn uin barnið í jötunni, boðskapinn um guðs
góða son, sem gjörðist maður vor á meðal, til þess að vjer gætum
orðið guðs börn, þar kvcður við úr djúpi hjartnanna lofgjörð og
þakklæti, og mannanna börn sýngja moð englum guðs jólasönginn
gamla, sem þó ávalt er jafn nýr: „Dýrð sje guði í upphæðum,
friður á jörðu og velþóknan yflr mönnunúm!“
Hoill því húsi, sem ekki úthýsir cngli jólanna. Heill því hjarta,
sem tekur á móti boðskap jólaengilsins! Því sá, sem úthýsir ongli
jólanna, hann úthýsir lífboðanum, ljósboðanum, friðarboðanum og
frelsisboðanum, já hann rckur gæfu sína á dyr á sjálfum jólunum.
Hvað gjörir þú, sem þetta lest? Hefir þú opnað húsdyr þínar
og hjartadyr þinar fyrir engli jólanna?
s> '