Verði ljós - 01.01.1897, Síða 17

Verði ljós - 01.01.1897, Síða 17
13 sínu lífsstaríi, hvcrt sein það var, þó nöfnin gleymist, þá lágu og um þær mundir í vöggu og fæddust upp ýmsir sannnefndir þjóð- mæringar, er varpaö hafa frægðarljóma yfir land vort á ýmsum svæðum mannlífs og menta. Pað þarf ekki annað en nefna nokk- ra af sonum íslands frá ofanverðri 18. öld, t. a. m Magnús Ste- phonsen, Jón Espólín, Finn Magnússon, Bjarna 'l’horarensen, Björn Gunnlaugsson, Sveinbjörn Egilsson o. fl. Meðal hina beztu sonu lands vors frá þeim tímurn, er og maklegt að teija þann mann, sem nefndur er í fyrirsögn ritgjörðar þessarar. En áður én hans verður nánar getið, skai hjer stuttlega skýrt frá, hvernig þá var umhorfs á því svæði, er haun starfaði á. II. Ekki er að sumu leyti glæsilegra að litast um í trúarlífl þjóð- ar vorrar efsta hlut 18. aldar, heldur en annarstaðar í þjóðlífi voru þá. Fyrri hluta aldarinuar hafði sú stefna víða verið efst ábaugi í lútersku kirkjunni, sem nefnd er heittrúarstefna (Pietismus). For- kólfum þeirrar stefnu hafði gengið hið bezta til, og er margt gott frá henni að segja En margt er og atbugavert við liana, eins og hún kom fraiu í Danavcldi. Þar gætti hennar einkum á ríkisstjórnarárum Kristjáns 6. (1730—1746), er sjálfur virðist hafa verið gagntek- inn af henni. Bera mörg af lagahoðum þeirra tíma hennar merki. Þá var fermingin lögleidd og tilskipanir gefnar út um helgidaga- hald, barnaspurningar og húsvitjanir og hin alræmda húsagatil- skipun. Allt var þetta fyrirskipað í þeim tilgangi að gjöra menn guðhrædda, on lögin geta haft áhrif á ytri siði og háttu, en eigi kúgað andann nje hugsunarháttinn. Er það líka almennt talið, að margt af lagasmíði Kristjáns 6. hafl eigi aukið guðrækni, en i þess stað leitt til hræsni. Og er þá ckki við góðu að búast. En svo virðist, sem heittrúarstefnan hafi fallið hjer á landi í betri jarð- veg en víða annarstaðar, og hafi átt vel við skap íslendinga, sem jafnan hafa verið alvörumenn. Það urðu snögg umskipti þegar Friörik 5. koin til rikis. Þá var guðræknisblæriun ekki lengi að hverfa af lögsmíðinu. Af kirkjulegri löggjöf frá ríkisstjórnarárum hans skal nefna eitt dæmi, eitthvert síðasta lagaboðið, er hann gaf út fyrir ísland. Það bauð að leggja niður 37 kirkjur og bænhús hjer á landi, og hofir það síðan tíðkast mjög alt fram á vora daga að fækka kirkjum. Sjest það berlega, að annar andi en heittrúar- innar er þá orðinn ráðandi í lögum og lofum. Eigí ínikln seinna voru ýmsir helgidagar teknir úr lögum. Kunnu ýmsir trúaðir raonn

x

Verði ljós

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.